154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

408. mál
[19:48]
Horfa

Flm. (Jóhann Friðrik Friðriksson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið og ef ég horfi bara til undanfarinna ára og þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað á Íslandi þá virðist umræðan ná einhverjum hæðum þegar ákveðnir þættir eru í gangi. Við sáum þetta til að mynda þegar sykurskatturinn var til umræðu. Við sjáum þetta varðandi netsölu áfengis. En okkur tekst ekki að lyfta lýðheilsuumræðunni almennt upp í samfélaginu. Við þurfum að huga að henni alltaf. Með því að setja til að mynda lýðheilsumat og lögfesta það þá myndum við þurfa að skoða þætti er snúa að lýðheilsu í hvert einasta skipti sem við fáum frumvörp í þinginu. Ég held að það almennt myndi vekja mikla athygli og yrði til góða. Þingmaðurinn nefndi sérstaklega lífsstílstengda sjúkdóma og við sjáum auðvitað núna faraldur offitu á Íslandi. Sem talsmaður lýðheilsu fyrir margra hluta sakir þá skil ég auðvitað þessa togstreitu á milli þeirra sem velta fyrir sér ákveðnu frelsi í sölu á ákveðnum hlutum, til að mynda áfengi, og síðan þeirra sem telja lýðheilsu vera, hvað á ég að segja, leið í átt að því að dempa það frelsi. Í mínum huga snýst þetta einmitt ekki um það. Þetta snýst fyrst og fremst um það að við séum að fá bestu mögulegu upplýsingar um hvaða áhrif löggjöf á Íslandi hefur á lýðheilsu og þá getum við brugðist við. Við eigum eins og hv. þingmaðurinn nefnir að vera með forvarnir númer eitt. Við höfum í ákveðnum tilvikum óskað eftir því að lýðheilsumat sé gert á löggjöf sem hér hefur verið samþykkt en hún þyrfti auðvitað miklu frekar að koma fyrr í ferlinu. Þá myndum við sjá miklu betri árangur af forvörnunum.