154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

framlagning stjórnarmála.

[10:30]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Mig langar að ræða hér verkstol ríkisstjórnarinnar og þau áhrif sem það hefur á þingstörfin. Við munum öll hvernig vorið fór þar sem þingi var slitið óvænt með fjölda mála ókláruð og það sem meira er, sum mál voru tilbúin af hálfu nefnda en fóru ekki til afgreiðslu inn í þingsal. Stjórnarliðar gátu bara ekki lengur verið nálægt hver öðrum. Svo kom sumarið og nú líður að jólum. Það eru þungar aðstæður í samfélaginu en samþykkt stjórnarmál eru orðin þrjú núna í lok nóvember. Það er varnargarðurinn, það eru átök fyrir botni Miðjarðarhafs, hvort tveggja óvænt mál sem ekki voru á þingmálaskrá, og síðan vaktstöð siglinga. Fjöldi mála sem áttu að koma inn á þing núna í haust er 109. Það eru 39 mál komin og eru þar með 38 í nefndum. Ég velti því fyrir mér hvort það hafi verið niðurstaða samningaviðræðna stjórnarliða í sumar að stjórnarsamstarfið myndi halda ef ríkisstjórnin passaði sig á því að gera ekki neitt. Og spurningin er: Er það þetta sem ríkisstjórnin vill bjóða heimilum landsins upp á núna, með verðbólguna enn á fullu skriði, vexti himinháa og fleiri risastór verkefni fram undan? Er þetta erindið?