154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

framlagning stjórnarmála.

[10:34]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég tek undir það sem hv. þingmenn hafa verið að segja hérna. Mér finnst það sérstaklega slæmt af því að það er ríkisstjórnin sem segir þinginu: Heyrðu, við ætlum að koma hérna með 109 þingmál fyrir jól. Kannski hrúgast þau inn á síðustu dögunum á meðan leyfið er enn þá til staðar, en tíminn sem þingið úthlutar til að fjalla um málin er liðinn þá. Þá erum við búin með september, október, nóvember þar sem tíminn í nefndum er mikilvægur til afgreiðslu þessara mála. Á sama tíma er, eins og hv. þm. Logi Einarsson sagði, fullt af þingmannamálum. Og nefndarfundir hafa verið að falla niður í ýmsum nefndum á sama tíma í staðinn fyrir að fjalla þá um þingmannamál. Hvers konar vanvirðing er það eiginlega fyrir tíma þingmanna sem leggja hérna fram mál? Af því að það eru ekki komin nægilega mörg stjórnarmál fram til þess að fjalla um og nota tíma nefndanna til að fjalla um þau þá segja formenn nefndanna bara: Heyrðu, nei, við þurfum ekki að fjalla um nein mál, ekki einu sinni þingmannamálin sem liggja hérna fyrir í röðum. Þetta er fáránlegt, algjörlega fáránlegt.