framlagning stjórnarmála.
Virðulegur forseti. Ég held að ríkisstjórnin sé að toppa sjálfa sig í lágkúrunni í því hvað vantar mikið af þingmannamálum — nei, það vantar ekki þingmannamál, það vantar stjórnarmál inn á þing. Í velferðarnefnd eru búnir að falla niður tveir fundir og einn fundur var tíu mínútur. En það var ekki út af málaleysi í nefndinni, það var nóg var nóg af þingmannamálum þar inni en það var bara ekkert frá ríkisstjórninni og þar af leiðandi skeður ekki neitt. Ég segi bara: Á þessum sex árum sem ég er búinn að vera hér þá hef ég aldrei upplifað það. Yfirleitt hefur verið nóg að gera í velferðarnefndinni og hún yfirfull af málum og frekar hefur vantað tíma en hitt. En núna bregður allt í einu svo við að það er ekkert um að vera, allt steindautt. Og ég spyr mig: Er þetta vegna þess að ríkisstjórnin getur ekki komið sér saman um málin eða er það vegna þess að hún er bara búin að gefast upp?