framlagning stjórnarmála.
Virðulegur forseti. Mig langar að koma hérna upp og taka undir þau sjónarmið að það er kannski ekkert ofsalega mikið af þingmálum hérna inni. Ég ætla hins vegar að segja að það er ekki það versta. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að þingið sé að reyna að setja of mörg mál á dagskrá og sem ráðherra get ég alveg tekið það til mín að hafa verið of brattur með það. (LE: Þú hefur ekki verið að íþyngja okkur með málum.)
Ég vil samt segja að mér finnst gagnrýnin ósanngjörn. Af þeim tíu málum sem ég ætlaði að koma með fyrir lok október eru átta komin inn í þingið. Ég hafnaði einu. Af fimm þingsályktunartillögum sem ég ætlaði að koma með fram að jólum eru þrjár hérna inni í þinginu og tvær á leiðinni eða komnar til þingsins þó að þær sé ekki komnar í meðhöndlun. Ég mælti reyndar fyrir annarri í gær og mæli vonandi fyrir þeirri síðustu af þessum fimm í næstu viku. Þannig að mér finnst að hér séu notuð dálítið stór orð um verkleysi og vandræðagang. Það er alveg klárt að verðbólguna tæklum við ekki með vaktstöð siglinga, en það er verkefni sem skiptir máli. Við hljótum að geta unnið alls konar mál í þinginu á meðan fjárlögin eru akkúrat stærsta málið er varðar það að ná niður verðbólgunni.