framlagning stjórnarmála.
Forseti. Mér finnst þetta að miklu leyti líka vera vanvirðing við almenning úti í samfélaginu. Hér eru ótrúlega margir sem horfa fram á afkomukvíða, það eru raunverulegir erfiðleikar í efnahagslífinu og raunverulegir erfiðleikar á heimilum fólks og það sér ekki alveg fyrir sér hvernig það er að fara að ná endum saman. Hér er ofboðslega mikið af góðum þingmannamálum á dagskrá sem er verið að ræða út af því að ríkisstjórnin er ekki með nein úrræði, þau eru ekki að gera neitt til að koma til móts við þetta fólk í samfélaginu. Ætli almenningur átti sig á því að í þessari málstofu á Alþingi, þar sem við ræðum mikilvæg frumvörp og þingsályktunartillögur stjórnarandstöðunnar, er bara engin meining eða ætlun hjá ríkisstjórninni að hleypa þeim málum í gegn, ekki einu sinni að setja þau á dagskrá í nefndum? Þetta finnst mér svo mikil vanvirðing við fólkið úti í samfélaginu sem horfir á þetta, horfir á þessi mál og hugsar með sér: (Forseti hringir.) Heyrðu, þarna eru frábær mál sem gætu hjálpað mér. En það er enginn vilji (Forseti hringir.) eða ætlun hjá ríkisstjórninni að afgreiða þessi mál. Við fáum þau ekki einu sinni á dagskrá í nefndunum. Þetta finnst mér vera vanvirðing, því miður.