154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

aðgerðir í húsnæðismálum og stuðningur við barnafjölskyldur.

[11:12]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég held að það skipti einmitt miklu máli að hæstv. forsætisráðherra fái að tjá sig um það hvað henni þyki um þessi mál því að við gerðum kerfisbreytingu á barnabótakerfinu. Ég veit svo sem ekki hvað hv. þingmanni þótti um þá kerfisbreytingu sem felur í sér að það nær til fleiri. Við það var stuðningur í þessum sal. Ég vil líka minna á það að stuðningur við barnafjölskyldur er hlutfallslega mikill á Íslandi þegar borið er saman við önnur Norðurlönd en hann er ólíkur og þá er ég að tala um niðurgreiðslu á þjónustu. Þetta birtist í samanburði OECD á stuðningi ríkja við barnafjölskyldur þar sem við tölum um stuðning við barnafjölskyldur, fæðingarorlof og auðvitað leikskólakerfi. Það er það sem við höfum verið að ræða á vettvangi þjóðhagsráðs, þ.e. hvernig við styðjum best við barnafjölskyldur á þessum erfiðu tímum. Er þetta umönnunarbil sem því miður hefur ekki breyst árum saman ekki orðið raunverulegur vandi fyrir barnafjölskyldur? Við sjáum tölur um að tekjur foreldra og sérstaklega mæðra lækka eftir að þær eignast börn. Erum við sátt við það kerfi? Þetta er það sem við þurfum að taka á hér í þessum sal. Hvað varðar fjárlögin (Forseti hringir.) þá er það vissulega vandasamt verkefni að tryggja aðhaldssöm fjárlög sem ekki ýta undir þenslu og verðbólgu á sama tíma og við þurfum að halda áfram að hlúa að þeim sem þess þurfa.