húsnæðisvandi Grindvíkinga.
Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að við sem búum á þessu landi þurfum að vera eiginlega tilbúin til að búa okkur undir hvað sem er og það sem hefur kannski verið í þessari hrinu núna síðast á Reykjanesskaganum og í kringum Grindavík er að eiginlega hefur versta sviðsmynd aldrei raungerst heldur hefur komið verri sviðsmynd sem menn þurfa að búa sig undir smátt og smátt, þannig að ég held að menn hafi verið að hlaupa mjög hratt þar.
Varðandi húsnæðismálin þá hefur það, eins og fram hefur komið, þegar 1% þjóðarinnar þarf húsnæði einn, tveir og þrír í kerfi þar sem var þröngt fyrir, gengið ótrúlega vel. Það var settur strax af stað ákveðinn hópur undir Rauða krossinum, undir Grindavíkurbæ, sem var mikilvægur, Framkvæmdasýslunni og fleiri aðilum, sem tók utan um þessa bráðabirgðabjörgun, að allt fólk komist í skjól. Við erum kannski að komast aðeins út úr því eða það er kannski bara næstu daga sem það skýrist. Þá tekur við fasi tvö. Það er að tryggja fólki húsnæði til lengri tíma á sama hátt og við höfum verið að skoða afkomuna út febrúar og slíka þætti. Þetta er það sem við höfum verið að vinna í stjórnkerfinu, í ríkisstjórninni og í öllu stjórnkerfinu, að sjá fyrir okkur hvernig við getum tryggt húsnæði fyrir þennan hóp til meðallangs tíma, hugsanlega lengri tíma. Nú heyrast reyndar kannski jákvæðari fréttir af atburðunum þarna hvað náttúruna varðar án þess að það sé hægt að fullyrða neitt um hvað það þýði nákvæmlega, hvenær fólk geti snúið hugsanlega heim til sín eða slíkt. En við verðum áfram að vera undirbúin undir það. Allt það sem hv. þingmaður nefndi hefur verið til skoðunar. Ég get ekki svarað því nákvæmlega hér og nú og mun gera það þegar við höfum komist til botns í því.
Varðandi endalok starfshópa þá ljúka þeir aldrei störfum fyrr en verkefninu er lokið.