húsnæðisvandi Grindvíkinga.
Virðulegi forseti. Ég er kannski einna helst að falast eftir því frá hæstv. ráðherra hvenær Grindvíkingar fái einhver svör um húsnæðisúrræði, bæði til skamms og svo til lengri tíma og hvort ráðherra geti verið aðeins nákvæmari heldur en bara ekki nákvæmur eins og hann var rétt áðan.
Síðan langaði mig að spyrja, gagnvart þeim íbúum Grindavíkur sem um ræðir, hvort það sé einhver sérstök greining til varðandi húsnæðisstöðu íbúa í Grindavík, þ.e. við erum að hugsa um t.d. leigjendur sem eru þá mögulega ekki að fara að fá húsin sín bætt og eru mögulega í verri stöðu en þeir sem eiga húseignir. Það er svolítið erfitt að segja til um þetta. Hefur þetta verið greint, hæstv. ráðherra? Getur hann komið aðeins inn á það? Verður einhver munur á því hvernig ríkisvaldið mun koma fram við leigjendur við hliðina á húseigendum? Það væri ágætt að heyra útlistun á þessu og sömuleiðis svolítið nákvæmari tímasetningar.