154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

áætlanir um viðbrögð við náttúruvá.

[11:25]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég er að reyna að greina þetta svar hæstv. ráðherra og ég ætla að leyfa mér að taka jákvæðu punktana. Það sem við stöndum frammi fyrir er að fjármálaáætlanir munu verða þannig að við þurfum að ná þverpólitískri samstöðu. Það dugar mér ekki að benda og segja: Þjóðaröryggisráð á að leysa þetta. Það dugar ekki því að þetta eru áætlanir, þetta eru aðgerðir sem þurfa að lifa af ríkisstjórnir. Þetta eru áætlanir sem þurfa að taka til þess hvernig við ætlum að svara strax fjármálaáhyggjum fólks, hvar sem það býr á landinu, hvort sem er undir Eyjafjallajökli, í Grindavík eða á Reykjanesinu. Við þurfum að efla Landhelgisgæsluna og styrkja hana. Við þurfum að svara spurningunni um varaflugvelli til að mynda. Allt eru þetta ákvarðanir sem við þurfum að taka í sameiningu sem þurfa að standast. Það er þessi fyrirsjáanleiki og þessar áætlanir sem við í Viðreisn erum ekki bara að leggja til, við erum að lýsa því yfir að við erum reiðubúin í þessa vinnu þvert á flokka (Forseti hringir.) af því það er í þágu fólksins í landinu að vita að það er samheldni og samstaða til að taka nákvæmlega á náttúruhörmungum, (Forseti hringir.) hvenær sem skella á okkur hvar sem er á landinu.