154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

áætlanir um viðbrögð við náttúruvá.

[11:26]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það hefur ekki skort á samtali af minni hálfu um þessi mál allt frá árinu 2019 þegar hér gekk yfir mikið óveður sem í raun og veru tók rafmagnið af hálfu landinu. Í kjölfarið var lagt af stað í gríðarlega umfangsmikla vinnu um innviði landsins sem var rædd hér mjög ítarlega. Það hefur verið staðið við það sem þar kom fram. Þar var sett fram tímasett áætlun um það hvernig við gætum tryggt betur innviði hringinn í kringum landið til að geta brugðist við. Það hefur svo sannarlega ótrúlega mikið starf verið unnið hér út frá þeim forsendum að við þurfum að styrkja áfallaþol og innviði samfélagsins og fyrir því hefur verið gert ráð í fjármálaáætlun. Það hefur líka verið unnið með það breytta fyrirkomulag, sem hefur verið frá því að lög um opinber fjármál tóku gildi, að við erum með varasjóði sem að sjálfsögðu nýtast í þessi mál því að gallinn er, þó að við séum alltaf að vinna að því að styrkja betur til að mynda raforkukerfið, hitaveitu, vatnsveitu og aðra nauðsynlega innviði, að óvissan er alltaf mikil. (Forseti hringir.) En ef hv. þingmaður er að vísa til þess að það sé þörf á öllum þverpólitísku samtali þá lýsi ég mig algerlega tilbúna í það því að þetta er mikilvægt mál og það varðar engan einn pólitískan flokk umfram annan. Þetta er okkar allra mál.