ráðstafanir til varnar byggð í Grindavík.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hann spyr: Hvaða ráðstafana hefur verið gripið til til að verja byggðina í Grindavík? Eins og fram kom í máli forsætisráðherra hér áðan þá greip ríkisstjórnin til varnarviðbragða vegna hugsanlegs eldgoss á Reykjanesskaga til að verja þá orkuverið í Svartsengi og það er mikilvægt, bæði gagnvart Grindavík en ekki síður gagnvart íbúum á Reykjanesskaga öllum.
Það hefur verið vitað allan tímann að það hafa verið líkur á gosi, jafnvel inni í Grindavík, í Sundhnúkagígaröðinni sem er fyrir norðaustan Grindavík eða jafnvel fyrir vestan Svartsengi. Allar sviðsmyndirnar eru slæmar og ef það hefst gos í Sundhnúkagígaröðinni norðaustur af bænum þá eru líkur til þess að hraun myndi renna til bæjarins. Nú þegar er búið að hanna leiðigarða og varnargarða þar fyrir norðan byggðina sem eiga að beina hraunflæði austur fyrir byggðina í Grindavík. Sömuleiðis er búið að hanna varnargarða fyrir vestan bæinn þannig að ef það kæmi upp kvika, segjum fyrir vestan Svartsengi eða í Eldvörpum, þá ætti að vera með tiltölulega hröðum hætti hægt að ýta upp leiði- og varnargörðum til að verja byggðina þeim megin. Stærsta áhyggjuefni okkar hefur verið orkuverið og við erum að gera, af okkar veikasta mætti, allt sem hægt er til að sjá við móður jörð til að verja orkuverið í Svartsengi.