154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

hlutverk ríkisfjármála í baráttunni gegn verðbólgu.

[11:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og hann fór ágætlega yfir bæði meginskilaboð Seðlabankans og þá stöðu sem blasir við okkur. Það er alveg rétt að að hluta til þyngist aðeins í því hversu bjartsýnn bankinn er á að ná verðbólgu niður til svona millilangs tíma. En það er líka mikilvægt að sjá hvaða kraftar eru þar undir og þá er hægt að máta það við það sem við getum gert hér á Alþingi með fjárveitingavaldið og hvert hlutverk ríkissjóðs er í baráttunni og hvert hlutverk annarra aðila er sömuleiðis. Hlutverk Seðlabankans er auðvitað alveg skýrt og ábyrgð hans er mikil en það þýðir þá líka að bæði þarf auðvitað að tryggja sjálfstæði bankans og að hann hafi starfsfrið til að sinna sínum verkefnum. Hlutverk okkar snýr fyrst og fremst að því að við séum ekki með skaðlegum hætti að afgreiða hvorki fjárlög né annað sem við gerum hér í þessu sameiginlega verkefni, að ná niður verðbólgu og ná niður vöxtum. Við erum með fjárlagafrumvarp í þinginu þar sem við erum með aðhaldskröfu. Auðvitað hefur staða ríkissjóðs batnað í raun um 100 milljarða frá því sem við gerðum ráð fyrir þegar síðustu fjárlög voru samþykkt og sem betur fer fara þeir 100 milljarðar í að bæta afkomuna en ekki í eitthvað annað. En betur má ef duga skal og ég held að það sé alveg ljóst að við þurfum að horfa mjög inn á við og mjög til þess hvað við getum gert. Þar vitum við að ef við aukum stórkostlega útgjöld þá er það ekki til að hjálpa. Við vitum að það er gríðarlega mikil ábyrgð hjá aðilum vinnumarkaðarins að ná ábyrgum langtímasamningum. Við vitum að við getum ekki horft á einhvern hlaupast undan og fara að dæla út hvers kyns verðhækkunum sem eru bara til þess að auka á þá svartsýni að við ráðum ekki við verkefnið og náum ekki tilætluðum árangri. Við verðum að ganga í takt og við verðum að trúa því og við verðum að skilja það að þetta er raunverulega undir okkur komið og við getum lagað það. (Forseti hringir.) Og það fer eftir því hvernig ákvarðanir við tökum hversu hratt það gengur.