hlutverk ríkisfjármála í baráttunni gegn verðbólgu.
Virðulegur forseti. Við verðum að ganga í takt. Að mínu mati og sem nefndarmaður í fjárlaganefnd er ríkissjóður Íslands ekki að ganga í takt í baráttunni gegn verðbólgu, svo mikið er víst. Það er alveg augljóst mál að verðbólgan er drifin áfram af gríðarlegri eftirspurn sem er fyrst og fremst keyrð áfram af ferðaþjónustunni. Okkur fjölgar um 1.000 manns á mánuði á Íslandi og það er alveg augljóst hvernig við drögum úr eftirspurn, við getum m.a. gert það með að draga úr ríkisútgjöldum. Við getum líka gert það með því að auka skattheimtu í landinu, m.a. skattheimtu á ferðaþjónustuna.
Núna hefur verið lagt fram frumvarp til laga hér á Alþingi um 300 kr. gistináttaskatt, 300 kr, vá, það nær ekki pulsuverði einu sinni. Þetta gjald er lagt líka á tjaldstæði, 3.000 kall sem fólk borgar þar, og líka á fimm stjörnu hóteli, 300 kr. Það er alveg augljóst mál að það er ekki verið að beita ríkisfjármálunum. Það er ekki verið að beita því að draga úr eftirspurn, t.d. með skattahækkunum á atvinnugrein sem þegar greiðir lægri virðisaukaskatt en aðrar greinar. Á sama tíma eru heimilin í landinu, sem sennilega eru að fara að missa þakið ofan af höfðinu vegna gríðarlegrar vaxtabyrðar, 9,25%, vegna hvers? (Forseti hringir.) Vegna þess að ríkisfjármálunum er ekki beint markvisst gegn verðbólgunni nægjanlega. (Forseti hringir.) Það er staðan í landinu í dag.