154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

hlutverk ríkisfjármála í baráttunni gegn verðbólgu.

[11:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að hluti af þeirri þenslu, má segja, en líka hluti af því að við erum með meiri hagvöxt en nánast, held ég, alls staðar annars staðar innan OECD sé að langmestu leyti drifinn áfram af fólksfjölgun í landinu. Það eru 1.000 einstaklingar að meðaltali á mánuði sem flytja til landsins. Við getum á margan hátt þakkað fyrir að hér sé margt að gerast en við getum líka spurt okkur hvort þetta sé of mikill vöxtur á of skömmum tíma. Þetta gerir a.m.k. stöðuna flóknari og þessu fylgja áskoranir. Við þurfum hið minnsta að átta okkur á því hvaða áhrif það hefur á heildarmyndina.

Það er í gangi vinna hjá ferðamálaráðherra um framtíðarfyrirkomulag gjaldtöku sem snýst bæði um jafnræði á milli þessara kjarnagreina ferðaþjónustunnar, þannig að það sé ekki ein kjarnagrein sem greiðir hærri skatta en önnur heldur sé jafnræði í því, en líka (Forseti hringir.) með þeirri framtíðarsýn að þetta snúist líka einmitt um stýringu, auðlindastýringu og stýringu almennt, (Forseti hringir.) þannig að við náum líka markmiðum okkar í stefnuramma um að fá meira út úr greininni og auka framlegð hennar, sem er mjög mikilvægt.