Staða Landhelgisgæslunnar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur fyrir fyrirspurnina og þann áhuga sem hún sýnir Landhelgisgæslu Íslands. Landhelgisgæsla Íslands er ein mikilvægasta stofnun Íslendinga og sú sem hefur notið hvað mests trausts á meðal almennings ár eftir ár. Um Landhelgisgæsluna verðum við að standa vörð. Verkefni Gæslunnar eru mikilvæg fyrir land og þjóð og stofnunin hefur gætt að því að þróast í takt við nýja tíma og áskoranir. Það má í raun segja að saga stofnunarinnar sé samofin sögu íslensku þjóðarinnar og það er óhætt að segja að margt hefur áunnist frá stofnun hennar þann 1. júlí 1926. Á síðastliðnum árum hafa umfangsmiklar framfarir orðið á aðbúnaði Landhelgisgæslunnar og fjölmörg framfaraskref verið stigin í átt að bættu öryggi þjóðarinnar. Landhelgisgæslan er í dag búin tveimur mjög öflugum varðskipum sem staðsett eru á sitthvorum enda landsins til að stytta viðbragðstímann. Hún býr enn fremur yfir þremur öflugum björgunarþyrlum og eftirlitsflugvélinni TF-SIF. Ekki er úr vegi að minna á að þegar herinn var á Íslandi voru hér staðsettar fimm þyrlur að jafnaði sem þjónustuðu okkur Íslendinga á neyðarstundu. Eftir brotthvarf hersins hefur okkur tekist að byggja upp öfluga þyrluþjónustu með miklum styrk til leitar og björgunar. Eins var það gríðarlega mikilvægt skref að fá annað skip til landsins, Freyju, sem staðsett er á Siglufirði og hefur svo sannarlega sannað gildi sitt. Þá er Landhelgisgæslan ekki einungis búin öflugum tækjabúnaði heldur hefur hún ávallt laðað að sér einvala lið starfsfólks sem býr yfir áræðni, hæfni og metnaði til að vera viðbúið þegar mest á reynir fyrir almenning í landinu.
Á síðastliðnum árum hefur móðir jörð ítrekað minnt okkur á kraft sinn. Við höfum verið í viðvarandi almannavarnaástandi síðastliðin ár þar sem við höfum þurft að takast á við fordæmalaus óveður, snjóflóð, aurskriður og nú eldsumbrot og jarðhræringar á Reykjanesi. Þessar aðstæður sem ítrekað koma upp í íslensku samfélagi minna okkur á mikilvægi þess að við séum undirbúin fyrir allar þær fjölbreyttu áskoranir sem náttúran færir okkur. Við þurfum ekki að velkjast í vafa um gildi Landhelgisgæslunnar á þessum tímum enda hefur hún verið mikilvægur hlekkur í þeim aðgerðum sem grípa hefur þurft til til að verja líf og tryggja öryggi almennings. Landhelgisgæslan gegnir þá lykilhlutverki í björgun á landi og sjó en Gæslan sinnir fjölmörgum björgunaraðgerðum í öllum veðrum og vindum allt árið um kring. Gríðarleg aukning skemmtiferðaskipa hér við strendur landsins kalla til að mynda á aukin verkefni Gæslunnar við björgun á sjó og aukin ferðamennska á hálendi Íslands hefur kallað á aukna björgun á landi. Landhelgisgæsla Íslands er því einn af hornsteinum almannavarna okkar og bráðaviðbragði vegna alvarlegra slysa um land allt. Því til viðbótar er Landhelgisgæslan nauðsynlegur hluti af löggæslu og vörnum ríkisins á hafi úti og ber á þessum viðsjárverðu tímum að vanmeta ekki vægi Gæslunnar að því leyti.
Samhliða miklum árangri Landhelgisgæslunnar og ótvíræðu gildi hennar fyrir íslenskt samfélag hefur átt sér stað umræða undanfarin ár um fjárhagsstöðu stofnunarinnar og er það ástæða þessarar umræðu hér í dag. Það er ekki launungarmál að rekstrarstaðan hefur verið þung en frá því að ég kom inn í dómsmálaráðuneyti í sumar hef ég lagt gríðarlega áherslu á að standa vörð um Landhelgisgæslu Íslands og þá ekki síst að bæta rekstrarskilyrði hennar. Það verkefni er viðvarandi og ég hef unnið að því í samvinnu við fjármálaráðherra, Landhelgisgæsluna og fjárlaganefnd Alþingis að finna leiðir til að tryggja fullnægjandi rekstrargrundvöll fyrir stofnunina á komandi árum. Það leynast tækifæri til hagræðingar, líkt og í öllum ríkisstofnunum, en hagræðing í rekstri má aldrei koma niður á þjónustustigi Gæslunnar og þar með öryggi almennings. Það verkefni er nú í höndum okkar hér á Alþingi að standa sameiginlegan vörð um Landhelgisgæslu Íslands og er ég þess fullviss um að við getum gengið frá fjárlagafrumvarpi sem tryggir sterka stöðu okkar mikilvægu stofnunar. Efling Landhelgisgæslunnar er eitt af mínum forgangsmálum á meðan ég gegni því embætti sem mér hefur verið falið. Þar tel ég brýnt að horfa til framtíðar.