Staða Landhelgisgæslunnar.
Virðulegi forseti. Landhelgisgæslan sinnir mikilvægu hlutverki í okkar samfélagi. Verkefnin eru fjölmörg en þau miða öll að því að stuðla að öryggi allra þeirra sem staðsettir eru á Íslandsmiðum og flytja fólk til nauðsynlegra staða þegar brýn þörf er á. Við treystum á Landhelgisgæsluna þegar á bjátar en hún verður líka að geta treyst okkur. Það liggur fyrir að verkefni eru á döfinni sem þarf að leysa svo starfsemi Landhelgisgæslunnar geti verið sem best. Það er öryggismál að starfsemi Gæslunnar gangi án fyrirstöðu og að festa sé í málefnum mannauðsins. Einnig þarf að tryggja viðunandi fjármögnun til Landhelgisgæslunnar en Gæslan hefur sýnt það að hún gerir sitt allra besta með það sem hún hefur en betur má ef duga skal. Við megum ekki þrengja sultarólina svoleiðis að það bitni á björgunargetu Gæslunnar og öryggi landsmanna. Það er gríðarlega mikilvægt að við skoðum hvað sparast þegar við förum fram með aðhaldskröfu á mikilvægt viðbragð hér á landi eins og hjá löggæslunni og Landhelgisgæslunni. Við getum ekki haldið því fram hér að það sé réttlætanlegt og rökrétt að setja aðhaldskröfu á Gæsluna eða löggæslu, það mun einungis bitna á öryggi landsmanna og viðbragði þeirra sem standa í stafni við erfiðar aðstæður og eiga í samskiptum við fólk þegar það stendur á oftar en ekki hvað viðkvæmasta stað í sínu lífi. Það er grundvallaratriði að styrkja stoðirnar en ekki veikja þær. Við eigum að mínu mati alls ekki að selja innviði Gæslunnar til að fjármagna mannauðinn sem þar er og því verðum við að falla frá og endurskoða eða falla alfarið frá aðhaldskröfunni og tryggja Landhelgisgæslunni trausta fjárveitingu og hætta að karpa um þetta síendurtekið. Ég segi fyrir mitt leyti að ég er orðin vel þreytt á því að koma hingað upp í ræðustól til að berjast fyrir því að björgunargeta, innviðir og fjárframlag til Landhelgisgæslunnar og löggæslunnar sé tryggt með viðunandi hætti.