Staða Landhelgisgæslunnar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa þörfu umræðu um stöðu Landhelgisgæslunnar og sömuleiðis þakka ég hæstv. dómsmálaráðherra fyrir greinargóð svör. Á síðasta þingi ollu áform um sölu TF-Lífar úlfaþyt í þessum sal og víðar í samfélaginu, eðlilega. Enn fremur held ég að það hafi komið mörgum á óvart hversu veigamikill þáttur útleiga vélarinnar til Landamæra- og strandgæslustofnunar Evrópu, Frontex, var í leigutekjum Landhelgisgæslunnar og jafnvel hafi það komið mörgum á óvart að hún væri yfir höfuð í útleigu og að Gæslan fjármagnaði sig að hluta með slíkum tekjum. Hvort tveggja kom í það minnsta fjármálum Gæslunnar kirfilega á dagskrá. Það er því eðlilegt að hér sé spurt til hvaða ráða skuli grípa til að tryggja nauðsynlega fjármögnun Landhelgisgæslunnar núna. Við þinglega meðferð núgildandi fjárlaga bar svo við að þingið tók málið í sínar hendur, eðlilega eftir það sem á undan hafði gengið og stöðu Gæslunnar þá. Það var ekki síst vegna þess mikilvæga hlutverks sem Landhelgisgæslan sinnir með tilliti til öryggis íbúa að tryggð voru fjárframlög til hennar og það verðum við að gera áfram og þess vegna var gott að heyra ráðherrann svara því hér að rekstur Gæslunnar yrði tryggður á komandi árum og vonandi sjáum við þess merki í næstu fjármálaáætlun. Á sama tíma verðum við að horfa til þess hvernig þeim fjármunum er best varið og hvert við beinum fjárfestingum. Fjárfesting í framförum, til að mynda með fastri starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Akureyri eins og lagt er til í nýlegri þingsályktunartillögu hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar sem allir þingmenn Norðausturkjördæmis eru meðflutningsmenn á, er dæmi um skynsamlega fjárfestingu sem eykur öryggi landsmanna til frambúðar. Með þeirri breytingu værum við auka viðbragðsgetu Gæslunnar svo um munar, ekki síst fyrir íbúa Norðurlands og Austurlands auk sjómanna og ferðamanna sem fara um hálendið. Hugmyndin hefur víða mælst vel fyrir enda falin í því verðmæti að bæta öryggi íbúa landsins. Gæslan er okkur öllum dýrmæt í öllum öryggismálum og því ber okkur skylda til þess að gera betur en við höfum verið að gera.