Staða Landhelgisgæslunnar.
Frú forseti. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu mun Landhelgisgæslan verða vanfjármögnuð á næsta ári. Þótt halli yfirstandandi árs hafi vissulega verið bættur í fjáraukanum vantar 700 milljónir inn í rekstrargrunn næsta árs.
Herra forseti. Mig langar að varpa örlitlu ljósi á þann blekkingaleik sem stjórnarþingmenn standa gjarnan fyrir þar sem á að segja allt aðra sögu en er uppi á borðinu. Réttum mánuði eftir að fjárlög voru lögð fram í haust lagði hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson fram þingmál um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Aðeins tveimur dögum síðar svaraði hæstv. dómsmálaráðherra svo óundirbúinni fyrirspurn frá Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar, þar sem dómsmálaráðherra sagði, með leyfi forseta:
„Það liggur alveg fyrir að það þarf að koma aukið fjármagn eða það þyrfti að selja flugvél, skip eða þyrlu.“
Frú forseti. Ég styð og Samfylkingin styður tillögu þingmannsins um starfsstöð á Akureyri og hefur raunar lagt það sjálf fram í nýrri heilbrigðisstefnu. En til að svo megi verða þarf að bæta 400 millj. kr. inn í rekstrargrunn Gæslunnar ofan á þær 700 milljónir sem vantar samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Hér er því á ferðinni fyrirsjáanlegur blekkingaleikur til að teikna upp betri mynd af ríkisstjórnarflokkunum. Eina leið hv. þingmanns og varaformanns fjárlaganefndar, Njáls Trausta Friðbertssonar, til að standa með þessari tillögu sinni er að styðja ekki þennan lið fjárlaga nema hann verði leiðréttur og bættur. Hann getur svo svarað því hér í ræðunni næst á eftir hvað hann hyggst gera.
Frú forseti. Við skulum hætta þessum hráskinnaleik. Það ætti öllum að vera ljóst mikilvægi góðrar, öflugrar og vel fjármagnaðrar Landhelgisgæslu, ekki síst þegar náttúruöflin leika okkur eins og þau hafa verið að gera síðustu daga.