Staða Landhelgisgæslunnar.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur fyrir að óska eftir þessari sérstöku umræðu í dag. Málefni Landhelgisgæslunnar hafa lengi verið þeim sem hér stendur hugleikin og ánægjulegt að heyra stuðning Samfylkingarinnar við það mál sem ég hef lengi talað fyrir.
Það var stór dagur í nóvember fyrir tveimur árum þegar nýjasta varðskip okkar, Freyja, kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Siglufirði. Með komu Freyju voru stigin stór og mikilvæg skref í því að efla björgunargetu Landhelgisgæslunnar á hafsvæðinu í kringum Ísland. Hér er mikilvægt að hafa í huga að í skýrslu forsætisráðherra um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum, sem kom út á síðasta ári, kom fram að nauðsynlegt væri að leggja mat á viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar og gera ráðstafanir til þess að tryggja betri vöktun. Jú, svæðið í kringum Ísland er stórt, 1,9 milljónir ferkílómetra, 19 sinnum stærra en Ísland.
Þegar varnarliðið yfirgaf Ísland árið 2006 dró verulega úr björgunargetu hér á landi með þyrlum en á sínum tíma voru fimm þyrlur staðsettar á Keflavíkurflugvelli. Það hefur verið mikil vinna lögð í að styrkja þetta viðbragð. Þetta hefur verið stórt verkefni. Vélakostur hefur verið bættur og flugáhöfnum hefur fjölgað og ekki er langt síðan sjöttu áhöfninni var bætt við í tengslum við þyrlureksturinn. Í dag eru þannig, að mig minnir, tvær áhafnir til taks tvo þriðju hluta ársins. Með því að tryggja starfsemi sjöundu áhafnarinnar yrði þetta hlutfall 95%. Það á að vera eitt af höfuðmarkmiðum íslenskra stjórnvalda að tryggja þessa starfsemi, tryggja öllum landsmönnum og sjómönnum á hafsvæðinu í kringum landið fyrsta flokks þjónustu. Ég hef fulla trú á því að góð niðurstaða náist í tengslum við fjármögnun Gæslunnar bæði til skamms tíma og til lengri tíma í tengslum við vinnu dómsmálaráðuneytis, fjármálaráðuneytis og fjárlaganefndar við fjárlög fyrir árið 2024 og fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029 sem við tökumst á við þegar líður að vori. (Forseti hringir.)
Ég vil vara við svona popúlisma eins og hljómar hér, við þurfum að …: (Gripið fram í.) Nei. Við þurfum (Forseti hringir.) að tala um þessi mál af þekkingu og þegar fyrrum pólitíkusar sem hafa stjórnað þessu landi eru með einhverjar bollaleggingar um að illa hafi verið staðið að málum (Forseti hringir.) þá þurfa menn aðeins að hugsa sinn gang. (Gripið fram í.)
Ég vil þakka Samfylkingunni kærlega fyrir stuðning við málið, að menn séu komnir á þennan vagn, að styrkja það að þyrla Gæslunnar verði staðsett á Akureyri. (Gripið fram í: … í fjárlagaafgreiðslunni.) Já. Bara takk kærlega fyrir stuðninginn við málið.
Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna á að ræðutíminn er tvær mínútur og það eiga ekki að vera frammíköll úr sal.)