Staða Landhelgisgæslunnar.
Forseti. Sko, ég veit ekki hversu mikill tími af ræðu ráðherra fór í að bara lofsyngja Landhelgisgæsluna, alveg fullt á málefnalegan hátt o.s.frv. Hún á það alveg skilið. En það er verið að ræða um ákveðin mál hérna varðandi fjáröflun og fjárstuðning við Landhelgisgæsluna, fjármögnun þessara verkefna, sem ítrekað hafa verið í fjármálaáætlun, sögð mjög metnaðarfull en hafa líka ítrekað ekki náð markmiðum sínum. Það var talað um hversu góður viðbragðstími átti að vera á þyrlum og hversu mikil viðvera flugvéla átti að vera. Það átti að fara alveg upp um heilan helling á milli ára yfir tímabil fjármálaáætlunar. Það fór bara alltaf niður á við.
Fyrr á þessu ári, 2. febrúar 2023, kemur frá dómsmálaráðuneytinu, með leyfi forseta:
„Á haustmánuðum fór dómsmálaráðherra fram á 517 millj. kr. aukalega í fjáraukalögum til að rétta af rekstrarhalla Landhelgisgæslunnar. Alþingi samþykkti rúmlega 214 millj. kr. Sömuleiðis reyndi ráðherra að fá 1.082 milljónir á fjárlögum til að mæta hallanum fyrir árið 2023 en Alþingi samþykkti 600 millj. kr.“
Við skulum hafa það sérstaklega í huga að Alþingi er meiri hluti þingsins. Það er ríkisstjórnin. Ríkisstjórnin eða dómsmálaráðherra leggur síðan ekki fram í fjármálaáætlun eða fjárlögum í kjölfarið þessar milljónir sem vantar upp á heldur fer einhvern veginn fram á það að Alþingi reddi málunum þegar það er ríkisstjórnin sem ræður þessu. Og ekki nóg með það, dómsmálaráðherra kemur undir lok síðasta árs til fjárlaganefndar og segir að það sé rosalega slæm staða, það þurfi að selja flugvélina. Alþingi sýnir algjör lágmarksviðbrögð, myndi ég segja, og skilaboðin eru þau að rekstur Landhelgisgæslunnar sé í algjörum járnum, hún hafi ekki séns á að gera neitt aukalega og það þurfi að grípa til rosalegra aðhaldsaðgerða.
Hvað gerist síðan í sumar? Það er farið í eitthvert tilraunaverkefni norður á landi, fínt verkefni, ég hef ekkert undan því að kvarta. En hvaðan kom peningurinn í það (Forseti hringir.) ef reksturinn var í svona miklum járnum? Hvernig er hægt að réttlæta það að koma til þingsins og segja að það vanti fullt af pening, (Forseti hringir.) segja að reksturinn sé í járnum og það þurfi að skera fullt niður og fara síðan í eitthvert aukaverkefni (Forseti hringir.) í sumar sem enginn vissi af, sem kostar einhverjar 100 milljónir? (Forseti hringir.) Mér finnst það fáránlegt? Það er bara verið að hafa okkur að fíflum hérna, hvernig er farið með fjárheimildir hérna, (Forseti hringir.) hvernig það er einfaldlega verið að ljúga að okkur um í hvernig stöðu reksturinn er (Forseti hringir.) ef það er hægt að finna 100 milljónir í einhver tilraunaverkefni sem er ekki hægt að setja í fjármálaáætlun? Þetta er fáránlegt. Ég þoli þetta ekki.
(Forseti (ÁLÞ): Forseti biður þingmenn um að virða ræðutímann.)