Staða Landhelgisgæslunnar.
Virðulegi forseti. Við höfum lært að lifa með náttúruöflunum og bregðast við þegar við mætum slæmum veðrum eða náttúruhamförum, standa saman og gera það sem er í okkar valdi til að vernda líf fólks og heilsu, búa þannig um hnútana að fólk viti, hvar sem það býr á landinu eða ferðast um það, sjófarendur, að við höfum öryggisnet til að bregðast við óvæntum aðstæðum, veikindum eða slysum. Þar koma margir að til að tryggja grunninnviði búsetuöryggis. Hér gegnir Landhelgisgæslan algeru lykil- og grundvallarhlutverki. Landhelgisgæslan sinnir ekki einungis öryggisgæslu á hafinu í kringum Ísland og öryggisviðbragði og eftirliti á sjó og landi fyrir okkur sem hér búum, heldur ber einnig að uppfylla alþjóðlegar skyldur og skuldbindingar Íslands varðandi öryggisgæslu og björgun á hafi úti í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar landsins, samninga við önnur ríki og ákvæði íslenskra laga.
Við erum eyþjóð með leitar- og björgunarsvæði sem telur 1,9 milljónir km2. Til þess að Landhelgisgæslan geti uppfyllt skyldur sínar samkvæmt lögum um Landhelgisgæsluna og alþjóðlegar skuldbindingar verður hún að hafa tiltæka sérútbúna flugvél sem við eigum í TF-SIF. TF-SIF gegnir margþættu ómissandi öryggishlutverki fyrir Ísland, lykilhlutverki vegna sjúkraflugs, björgunarstarfs og eftirlits á hafsvæðinu í kringum landið. Það varðar þjóðaröryggi okkar á breiðum grunni að til staðar séu flugvélar eins og TF-SIF og þeim, ásamt tækjum, sé vel við haldið. Vel útbúin varðskip og öflugar sjúkraþyrlur skipta einnig sköpum. Því er mikilvægt að sjúkraþyrla, búnaður og áhafnir séu staðsettar á Norðurlandi. Helsta vaxtarsvæði landsins fjarri höfuðborgarsvæðinu er einmitt í Skagafirði og Eyjafirði. Ég tek því heils hugar undir tillögu hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar um að Landhelgisgæslan komi upp fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum sínum á Akureyri og er meðflutningsmaður að henni ásamt fleiri þingmönnum. (Forseti hringir.) Svo að Landhelgisgæslan geti gegnt hlutverki sínu er kristaltært að fjárhagslegur grundvöllur starfseminnar verður að vera bæði traustur og tryggður.