Staða Landhelgisgæslunnar.
Frú forseti. Ég held að meginniðurstaða þessarar umræðu liggi fyrir, hv. málshefjandi eða hæstv. ráðherra leiðréttir mig þá í lokin ef það er einhver misskilningur. En mér virðist meginniðurstaðan sú að hæstv. ráðherra og hv. þingmenn meiri hlutans hafi tekið að sér hér í dag að berjast gegn eigin stefnu hvað varðar Landhelgisgæsluna, berjast gegn því fjársvelti sem þessi ríkisstjórn hefur sett þá stofnun í, ef mönnum er alvara með þeirri umræðu sem fram hefur farið hér í dag. Hvað varðar hugsanlega þyrlu á Akureyri þá styð ég það heils hugar. En það var engu að síður sérkennilegt að hv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins skyldi leggja fram þá tillögu í ljósi þess að flokkurinn, hv. þingmaður og stjórnarmeirihlutinn, var þá nýbúinn að ákveða að viðhalda fjársvelti Landhelgisgæslunnar, hún hefði ekki einu sinni nægt fjármagn til að halda úti þeirri þjónustu sem hún á að halda úti núna, hvað þá að bæta við. Komist þessi tillaga til atkvæða og afgreiðslu mun ég styðja hana eindregið en ég óttast að hún muni ekki koma til lokaatkvæðagreiðslu af því að hugsanlega sé þetta bara tilraun til þess að sýna vilja um eitthvað sem ekki stendur til að gera. En þessi umræða í dag hefur a.m.k. sýnt okkur að hv. þingmenn meiri hlutans og hæstv. ráðherra hafa lýst ákveðnum vilja og nú á bara eftir að koma í ljós hvað býr að baki, hversu langt menn ganga í að staðfesta og standa við þau orð sem hafa fallið hér í dag.