Staða Landhelgisgæslunnar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum fyrir umræðurnar hérna í dag. Ég tek undir með síðasta ræðumanni, það rifjast upp fyrir mér fræg ummæli núverandi Bandaríkjaforseta, Joe Biden, sem segir: Sýndu mér fjárlögin þín. Ég skal segja þér hver stefnan þín er í pólitík.
Þetta er það sem við erum að tala um hérna í dag. Auðvitað er mjög jákvætt að upplifa þann mikla stuðning sem þessi mikilvæga stofnun, Landhelgisgæslan, hefur meðal þingmanna, en ég velti fyrir mér: Hver er þá að stöðva nauðsynlega fjármögnun til Landhelgisgæslunnar? Vegna þess að fjárlaganefnd er búin að fá tillögur inn í 2. umræðu fjárlaga og vissulega kunna að koma einhverjar breytingar inn í 3. umræðu vegna Grindavíkur, en það er Grindavík. Það er áfall sem hefur orðið. Undirliggjandi rekstrarstaða Landhelgisgæslunnar er slæm. Ef ég skil hæstv. ráðherra rétt, að það sé núna í höndum nefndarinnar að klára það verk sem ríkisstjórnin treystir sér ekki í, sem er að treysta fjárhag Landhelgisgæslunnar, þá mun ég að sjálfsögðu styðja það. En þetta er auðvitað sérkennilegt vinnulag, verð ég að segja.
Það hefur komið hérna fram í máli hæstv. ráðherra og líka fjármálaráðuneytisins að það sé verið að greina þennan vanda frekar. Það hefur verið talað um að mögulega sé hægt að hagræða frekar í rekstri. Í því samhengi er stundum vitnað í skýrslu ríkisendurskoðanda frá því fyrir ekki svo löngu síðan varðandi hagræðingartillögur, en það er ekki talað um að í þeirri skýrslu stendur líka að það vanti 2 milljarða kr. inn í rekstrargrundvöll Gæslunnar, sem er 30% aukning miðað við það sem við sjáum í dag.
Ég hvet hæstv. dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra að hlusta á reynslumikið starfsfólk Landhelgisgæslunnar sem bendir á að það eru engar töfralausnir til að spara í rekstrinum, annaðhvort þarf að selja tæki eða segja fólki upp. Þess vegna vil ég ítreka hérna í lokin spurningar mínar til hæstv. dómsmálaráðherra:
Hver er afstaða hennar varðandi aðhaldskröfu á Landhelgisgæsluna í ljósi fjárlaganna sem núna liggja fyrir? Er hún að lenda í vandræðum hjá hæstv. fjármálaráðherra fyrir að styðja þá kröfu að fjarlægja þessa aðhaldskröfu? Styður ríkisstjórnin þessi ummæli hæstv. dómsmálaráðherra að fjarlægja aðhaldskröfuna á Landhelgisgæsluna?