154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra.

402. mál
[12:57]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Lengi býr að fyrstu gerð. Hér er komið fram mál sem ég tel að sé afar brýnt og get tekið undir. Eins og við vitum þá hefur umræðan verið töluverð, sérstaklega meðal sveitarfélaganna, um hvernig eigi að koma fyrir skólamáltíðum, hverjir eigi að greiða fyrir þær, og eins og nefnt er í þessari ágætu greinargerð sem fylgir tillögunni þá er enginn heildrænn samhljómur á milli sveitarfélaga þegar að því kemur. Sum sveitarfélög hafa farið þá leið að veita afslætti, m.a. systkinaafslætti og, ef ég má sletta, frú forseti, haft svona prógressíft kerfi þar sem hefur verið litið svo á að þeir sem geta greitt, og geta greitt auðveldlega, þessa upphæð geri það en þeir sem þurfa á hjálp að halda við það þá annaðhvort láti vita eða sveitarfélög hafa útbúið kerfi til að tryggja að allir fái skólamáltíðir sem þurfa.

Þetta eru auðvitað bara eðlileg sjónarmið og það er alveg vert að velta því upp hvort hér ættu allar skólamáltíðir á Íslandi fyrir grunnskólabörn að vera gjaldfrjálsar. Það er bara pólitísk ákvörðun en líka í mínum huga eitthvað sem við þurfum að horfa á út frá lýðheilsu. Þess vegna langar mig að nefna það í andsvari mínu að við höfum verið að styðja við heilsueflandi skóla um land allt og væri mjög áhugavert þegar þetta ágæta mál fer til nefndar að leita eftir umsögnum um það.

Hér kemur margt áhugavert fram sem hægt væri að nýta m.a. hádegismat barnanna í, sem ég tek heils hugar undir, og ég velti fyrir mér og er með þá spurningu til framsögumanns hvort hægt væri að ná fram stórum hluta af því þó svo að gjaldfrjálsar skólamáltíðir yrðu ekki endurskoðaðar sérstaklega.