gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra.
Herra forseti. Ég þakka flutningsmanni, Steinunni Þóru Árnadóttur, fyrir að eiga þessi orðaskipti við mig. Þetta er mikilvæg umræða. Þegar við stigum það skref að gera námsgögn í grunnskólum gjaldfrjáls held ég það hafi bara hafi létt á bakinu á mjög mörgum grunnskólabörnum. Ég man sjálfur eftir því að rogast með töskuna í skólann en nú eru námsgögnin bara í skólanum. Auðvitað er það jöfnunartæki einnig. Það kann því að vera mjög skynsamlegt að fara umrædda leið og ég vil alls ekki draga úr mikilvægi þess.
Hér er líka nefnd sú lýðheilsustaða sem blasir við okkur Íslendingum og þetta er að sjálfsögðu innlegg inn í þá umræðu. Hér hafa tölur birst okkur á undanförnum vikum, og reyndar reglulega á undanförnum árum, um stöðu lýðheilsu í landinu, ekki bara varðandi offitu barna, eins og nefnt er hér, heldur líka offitu fullorðinna og hreyfingarleysi. Það hefur verið sérstakt áhyggjuefni embættis landlæknis þegar horft er til næringar barna og þar af leiðandi myndi þetta tengjast því beint. En það hefur líka verið sú umræða uppi, herra forseti, að það sé ekki endilega stjórnvalda að stýra því hvað börn borði í skólum, þó að ég sé ekki sammála því. Myndi flutningsmaður ekki telja mikilvægt að við horfðum sérstaklega til þess að svona breytingar yrðu metnar af hálfu embættis landlæknis og raunhæf markmið yrðu sett fram sem síðan yrði fylgt eftir til að sjá hvaða raunhæfu eða bara líklegu áhrifum þetta myndi skila fyrir lýðheilsu barna ef við færum þessa leið?