upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.
Virðulegi forseti. Ég endurflyt nú enn einu sinni tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldi. Þessi tillaga hefur þegar verið flutt þrisvar sinnum síðustu þrjú löggjafarþing en hlaut þá ekki afgreiðslu. Ég flyt nú að ég vona í síðasta skipti flutningsræðu þessarar tillögu og vona að málinu verði veittur framgangur.
Það er breið pólitísk samstaða um málið og við getum öll verið sammála um mikilvægi þess að við grípum styrkum höndum utan um þennan viðkvæma hóp og brjótum upp ákveðinn vítahring sem myndast hefur í þessum málum. Við höfum verið að stíga stór og stöndug skref í áttina að því að bæta verkferla hjá lögreglu og þá hefur einnig verið gripið til mikilvægra réttarúrbóta fyrir þolendur ofbeldis. Baráttunni er þó ekki lokið og við erum enn að sjá allt of háar tölur um tíðni heimilisofbeldis.
Þolendur veigra sér oft við því að tilkynna lögreglu um ofbeldið enda gerandinn oft einstaklingur sem er nákominn þolanda. Í smærri sveitarfélögum þar sem íbúar þekkja flestir hver annan getur það ekki síður verið þungbært að tilkynna um heimilisofbeldi. Því er mikilvægt að þau stjórnvöld sem starfa náið með íbúunum hafi víðtækar heimildir til að eiga frumkvæði að því að grípa inn í og eiga samstarf við önnur stjórnvöld um viðbrögð við slíkum brotum. Þótt verklagsreglur ríkislögreglustjóra hafi tryggt samstarf lögreglu við önnur stjórnvöld þarf samstarfið einnig að verða formfast í hina áttina, þ.e. með tilkynningum félagsmálayfirvalda, heilbrigðisyfirvalda og menntastofnana til lögreglu og með samstarfi þeirra á milli að frumkvæði annarra yfirvalda. Til þess að slík upplýsingagjöf geti átt sér stað með skilvirkum hætti með hagsmuni brotaþola að leiðarljósi þarf skýrari lagaheimildir til upplýsingamiðlunar.
Allt samráð milli stofnana samfélagsins þarf að eiga sér stað með þátttöku og samþykki brotaþola. Þegar ástæða er til að ætla að barn hafi orðið vitni að heimilisofbeldi eða orðið þolandi þess þarf þó að tryggja að skilyrði um þátttöku og samþykki brotaþola komi ekki í veg fyrir inngrip stjórnvalda sem sé andstætt hagsmunum barnsins. Kanna þarf hvort rýmka þurfi og skilgreina betur tilkynningarskyldu stjórnvalda sem hafa afskipti af málefnum barna til barnaverndaryfirvalda. Hagsmunir barna skulu alltaf vera í fyrirrúmi og þetta höfum við ítrekað staðfest, m.a. með samþykkt og innleiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en heimilisofbeldi á heimili barns varðar það alltaf, hvort sem barnið verður fyrir því eða verður vitni að því. Foreldrar og forráðamenn barns eru helstu fyrirmynd þess og það lærir af þeim, bæði meðvitað og ómeðvitað, og því fylgir ábyrgð. Ofbeldi, hótanir og ógnandi hegðun eru ekki réttar leiðir til að takast á við reiði, erfiði eða mótlæti. Börn læra af foreldrum og forráðamönnum hvernig bregðast eigi við áreiti og heimilisofbeldi getur haft sálræn áhrif á barn til frambúðar. Það er sárt að vita af því að börn lifi við slíkar aðstæður hér á landi og við eigum ekki að hætta vinnu okkar gegn heimilisofbeldi. Það er í þágu allra viðkomandi.
Virðulegi forseti. Þetta er almannaheillamál og mikilvægt skref því samkvæmt 2. gr. mannréttindasáttmála Evrópu ber okkur að vernda rétt hvers manns til lífs með lögum. Heimildir til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi eru enn óljósar og brýnt að endurskoða regluverkið hvað þetta varðar. Það hefur þegar verið stigið skref í þessa átt en á síðasta löggjafarþingi samþykkti Alþingi breytingar á lögum um heilbrigðisstarfsmenn þar sem heilbrigðisstarfsfólki var veitt sérstök heimild til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi. Þetta er fagnaðarefni því að nú stendur þagnarskylda heilbrigðisstarfsmanna því ekki fyrir þrifum að hægt sé að tryggja þolendum viðeigandi aðstoð í réttarkerfinu, en hingað til hefur þagnarskylda heilbrigðisstarfsmanna hamlað framgangi mála hjá lögreglu. Úr því hefur verið bætt og ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir sína framgöngu í því máli. Öll skref í þessa átt skipta máli.
Með þessu er markmiðið að tryggja sem jafnast aðgengi þolenda að stuðningi og heilbrigðisþjónustu óháð búsetu, efnahag eða öðrum aðstæðum. Þá hefur einnig verið lagt til að ráðist verði í vinnu við skipulagða fræðslu fyrir heilbrigðisstarfsfólk en það eru yfirleitt einstaklingarnir sem fyrst mæta þolendum eftir ofbeldi. Svona miðar okkur áfram. Lengi hefur verið kallað eftir skýrum aðgerðum í þessum málaflokki og því mikið fagnaðarefni að við séum að sjá breytingar og alvöruaðgerðir í þágu þolenda. Okkur ber að tryggja faglega og trausta þjónustu við þolendur með þeim hætti að þeir upplifi raunverulega og trygga aðstoð eftir áfallið því að þarna er um að ræða einstaklinga þar sem traust þeirra hefur verið brotið með mjög grófum hætti. Þessar aðgerðir eru svo sannarlega þáttur í því að tryggja öryggi og þjónustu við þolendur heimilisofbeldis.
Virðulegi forseti. Markmið þessarar þingsályktunartillögu er að ganga enn frekar í miðlun upplýsinga og að núverandi kerfi verði endurskoðað með það fyrir augum að einfalda barnaverndaryfirvöldum, félagsmálayfirvöldum og heilbrigðisyfirvöldum sem og menntamálayfirvöldum að miðla upplýsingum sín á milli og til lögreglu, ávallt með það að leiðarljósi að tryggja persónuverndarsjónarmið hvað miðlunina varðar.
Ég bind miklar vonir við að við getum tryggt þessu máli framgang og auðveldað þá upplýsingamiðlun sem hér um ræðir því að við verðum að skapa þær forsendur í okkar samfélagi fyrir fjölskyldur og fyrir börnin okkar að þau búi við öryggi. Þau eiga að njóta þeirra grundvallarréttinda að búa við öryggi án ofbeldis og ógnar á þeim stað sem á að vera friðhelgur griðastaður. Við eigum öll þann skilyrðislausa rétt skilið.