upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þennan flutning og ræðuna. Ég hef svo sem áður tekið til máls í þessu máli sem mér finnst mjög áhugavert og mikilvægt. Í rauninni velti ég fyrir mér hvað það er sem upp á vantar. Ég held að við í allsherjar- og menntamálanefnd ættum að fara vel yfir þetta því að hér er auðvitað líka verið að tala um lagaheimildir til að miðla upplýsingum og þar erum við fyrst og fremst að reka okkur á persónuvernd.
En mig langaði í þessu samhengi að minnast hér á nokkuð sem ég held að hv. þingmaður þekki ágætlega. Á síðasta Norðurlandaráðsþingi samþykktum við tillögu um að samræma aðgerðir á Norðurlöndunum til að auka þekkingu og til að koma í veg fyrir og berjast gegn morðum í nánum samböndum. Þetta er þingmál sem hefur verið í vinnslu í töluverðan tíma í Norðurlandaráði og segir m.a. í greinargerðinni með því: Morð er alvarlegasta birtingarmynd ofbeldis í nánum samböndum og á sér sjaldan stað án aðdraganda.
Hv. þingmaður er að ræða hér um heimilisofbeldi en það er því miður þannig að of oft endar slíkt ofbeldi með dauða. Það er rakið ágætlega í greinargerð Norðurlandaráðs hversu hátt hlutfall kvenna deyr á ári hverju af völdum maka eða fyrrverandi maka. Það er sláandi, þetta eru tölur frá Sameinuðu þjóðunum frá árinu 2019, að þar segir að daglega falli 137 konur í heiminum — daglega — fyrir hendi fjölskyldumeðlims og meira en þriðjungur þeirra kvenna sem myrtar voru árið 2017 voru myrtar af þáverandi eða fyrrverandi maka. Þegar þessar tölur eru skoðaðar sem hlutfall manndrápa eru þetta um 13,5%. En þegar þessar tölur eru skoðaðar á Norðurlöndunum þá er þetta miklu hærra. Það voru 26% í Svíþjóð og 27% í Noregi.
Ég lagði fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra eftir að þetta mál kom fyrst upp og fékk gögn frá ríkislögreglustjóra þar sem fram kom að 22% af manndrápum eru framin af maka eða fyrrverandi maka, reyndar 51% af kunningjum eða vinum og er talið að í einhverjum tilfellum gæti verið um einhvers konar ástarsamband að ræða í því.
Þetta eru svo sláandi tölur þannig að ég ætla bara að þakka hv. þingmanni fyrir að koma fram með þetta og mun örugglega leggja áherslu á það þegar við förum yfir þetta verklag að við notum okkur líka reynslu hinna Norðurlandanna. Það væri ekki úr vegi að það væru samræmdar aðgerðir þannig að þegar við finnum gott verklag við þetta þá séu Norðurlöndin svolítið saman í þessari vegferð því að þar er þetta hlutfall hærra, reyndar líklega af þeirri góðu ástæðu að morð eru tiltölulega sjaldgæf á Norðurlöndunum miðað við víðast annars staðar í heiminum en þetta eru engu að síður sláandi tölur. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa framlagningu.