upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka flutningsmanni þessarar tillögu, hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur, og hennar meðflutningsfólki fyrir þetta. Maður sér að þetta mál hefur verið vandlega rætt hér á þessum stað, bæði í þessum sal og líka í nefndum og fjöldamargar umsagnir hafa borist um þetta mál sem ég get ekki betur séð við mína yfirferð á þeim en að séu flestar jákvæðar í garð þess. Væntanlega hafa nefndir fengið gesti til sín og rætt þetta þannig að þetta er mikilvægt og jákvætt mál. Auðvitað er gott að halda því til haga að það er vandmeðfarið að deila persónulegum upplýsingum og þarf auðvitað að passa hvernig það er gert. En í ljósi þeirra umsagna sem þessi tiltekna tillaga fær held ég að það séu kannski ríkir hagsmunir þarna inni til að það verði gerðar einhverjar úrbætur á þessum málum.
Við sjáum líka bara dæmi úr almennri umræðu, t.d. var grein í Heimildinni nýlega sem var frásögn konu sem hafði lent í heimilisofbeldi og fór á Landspítalann og fékk þar óblíðar móttökur eða a.m.k. móttökur sem urðu til þess að hún lét sig hverfa þaðan og lét sér ekki detta í hug að leita til þess staðar aftur eða neinna sem hugsanlega hefðu getað veitt henni skjól í hennar stöðu. Landspítalinn svaraði þessari frásögn og telur sig hafa gert úrbætur á verkferlum sínum og er sannarlega vonandi að það sé rétt.
En við vitum það öll sem hér erum inni og flest sem hafa velt þessum málum fyrir sér að það er mikil brotalöm í þessum málaflokki hér á Íslandi, því miður. Nú er það svo að við Íslendingar erum efst á hinum svokallaða Global Gender Gap-lista, sem er birtur árlega, og hreykjum okkur gjarnan af því og mörg, sérstaklega erlendis, halda að þetta land sé af þeim sökum einhver jafnréttisparadís. En við sem hér búum við vitum auðvitað að það er ekki svo. Ástæðan fyrir þessari veru Íslands í efsta sætinu á þessum lista hefur gríðarlega mikið með það að gera að hér var kona forseti lýðveldisins í 16 ár og eins og við vitum, með fullri virðingu fyrir því ágæta embætti, þá er það ekki það valdamesta embætti, svona í daglegum störfum landsins, stjórnsýslunnar hér, þó svo að það hafi vissulega valdheimildir sem það hefur beitt á ögurstundu.
Kynbundið ofbeldi er gríðarlega alvarlegt mál hér á Íslandi og heimilisofbeldi er stór partur af því. Það er auðvitað hluti af þessu kynjakerfi sem við búum við og því hvernig karlar beita konur ofbeldi í stórum stíl, því miður, innan þess kerfis og hvernig kerfið okkar veitir þeim skjól til að beita ofbeldi. Konur sem leita réttar síns í réttarvörslukerfinu á Íslandi hafa margoft lýst því sem ofbeldi í sjálfu sér að þurfa að ganga í gegnum það. Ég þekki persónulega konur sem hafa lent í ofbeldi og láta sér ekki til hugar koma að ganga í gegnum þau svipugöng sem þar er að finna og er það okkur bara til hreinnar skammar, ég verð að segja það, hæstv. forseti, það er okkur til skammar hvernig það kerfi er í sjálfu sér.
Ég er því glaður og ánægður að sjá að þetta mál er komið fram enn á ný og ég vona svo sannarlega að það finnist svigrúm hérna í þessum salarkynnum, hæstv. forseti, því að manni heyrðist svona á umræðunni hér í upphafi fundar að það væri greinilega talsvert svigrúm inni í nefndum um þessar mundir sökum málafæðar frá ríkisstjórninni til að ræða svona mál og ljúka umfjöllun um þau, svona mikilvæg mál sem ekki þurfa að kosta ríkissjóð stórar fjárhæðir en geta vonandi haft góð áhrif á þennan mikilvæga málaflokk til allrar framtíðar.