flutningur Útlendingastofnunar til Reykjanesbæjar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir framsögu á þessari tillögu hans og annarra hv. þingmanna. Ég bendi á, af því að það er rétt hjá hv. þingmanni, að það er meinleg villa í greinargerðinni með tillögunni um að hlutfall erlendra ríkisborgara er miklu hærra en 9% í Reykjanesbæ. Þann 12. janúar 2021 samkvæmt þjóðskrá var hlutfall erlendra ríkisborgara 25,3% í þeim bæ, þannig að það er talsvert hærra en 9% og með því hæsta sem gerist á landinu. Þetta er að mörgu leyti mjög skiljanlegt mál því að það er rétt sem hv. þingmaður segir að hér á höfuðborgarsvæðinu er auðvitað þungamiðja íslenskrar stjórnsýslu og það er í sjálfu sér ekkert náttúrulögmál að svo þurfi að vera. Borgin, eins og ég hef áður nefnt hérna í ræðum undanfarið, er dýnamísk og þarf ekkert endilega á stjórnsýslu að halda til þess að vera aðlaðandi staður til búsetu. En slíkar stofnanir kunna að gera það að verkum að fólk með tilskilda menntun og reynslu kjósi að flytja til að starfa hjá slíkum stofnunum og það er líka gott fyrir sveitarfélög og svæði þar sem menntunarstig er klárlega lægra að meðaltali en annars staðar. Það á því miður við um Suðurnesin af ýmsum ástæðum sem of langt mál væri að tíunda hér, sögulegum og öðrum.
Ég velti hins vegar fyrir mér gagnsemi svona tilflutnings á þeim tímum sem við lifum í dag þar sem er að verða sífellt algengara að fólk vinni einhvers staðar og búi einhvers staðar allt annars staðar og sinni vinnu sinni í fjarvinnu. Ég minni á stefnu ríkisstjórnarinnar um störf án staðsetningar í þessu sambandi. En það eru engu að síður mjög fín hugmynd að velta upp þeim kostum að staðsetja stofnanir annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu. Þar af leiðandi held ég að það sé bara mjög jákvætt að nefndin taki þessa tillögu til umfjöllunar og velti upp kostum og göllum þess að fara þessa leið.
Það er auðvitað líka rétt sem fram kemur í greinargerðinni að Suðurnesin eru, eins og staðan er í dag, hlið landsins og í gegnum það hlið fara flest þau sem hingað koma. Það er annað sem bent er á líka og hv. þingmaður benti á í sinni ræðu áðan, þ.e. að atvinnuleysi hefur lengi verið, því miður, hærra á Suðurnesjum en annars staðar. Þó svo að þessi stofnun sé kannski ekki það stór að hún muni höggva stór skörð í atvinnuleysistölur á Suðurnesjum þá er þetta liður í því að styrkja það svæði. Þetta eru einhverjir hlutir sem ég geri ráð fyrir að nefndin muni taka til umfjöllunar.
Hins vegar er oft og tíðum lag að gera svona hluti, flytja starfsemi út á land eða á aðra staði, þegar verið er að gera breytingar á stofnunum. Það er auðvitað ljóst að við Íslendingar stöndum frammi fyrir miklum breytingum þegar kemur að innflutningi fólks til landsins og það hefur gerst mjög hratt. Auðvitað byrjar það að gerast með inngöngu Mið- og Austur-Evrópuríkja í Evrópusambandið sem veitir fólki þar atvinnuréttindi hér á Íslandi sem það hefur óspart nýtt sér. Við höfum séð það bara í síauknum mæli núna undanfarin örfá ár hvað fólki hefur fjölgað hér og það er auðvitað fullt tilefni til að stjórnvöld á Íslandi vakni upp við þessa stöðu og geri ráðstafanir og móti sér innflytjendastefnu. Liður í því gæti verið að að taka til skoðunar stofnun á borð við Útlendingastofnun, sem ég myndi telja að gæti verið mjög mikilvægur hluti af einhverri slíkri nýrri stefnu ef til kæmi. Þetta mál gæti því orðið hluti af miklu stærra máli sem ég held að sé löngu orðið tímabært að taka til mjög gaumgæfilegrar og vandaðrar umfjöllunar, bæði hér á þingi og annars staðar í samfélaginu.