154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

aðgerðaáætlun til að efla Sjúkrahúsið á Akureyri.

83. mál
[15:37]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég ætla að taka undir með öðrum sem hér hafa tjáð sig og taka undir þessa góðu þingsályktunartillögu og skrá mig á hana svo fljótt sem verða má. Þetta er sannkallað framfaramál, tímabært, og í rauninni er ekki hægt annað en að styðja þetta. Hafandi verið barn á Akureyri þurfti ég stundum að leita til þessarar stofnunar og yfirlæknisins Guðmundar Karls sem þá var. Ég á bara góðar minningar af þeirri þjónustu sem ég hef fengið þar og ég held að svo sé um flesta sem þangað hafa leitað.

Háskólinn á Akureyri er stofnun sem var ekki til þá en er til núna og hefur verið um áratugaskeið. Þaðan fæ ég mjög góðar fréttir og meira að segja er dóttir mín þar í námi og lætur afar vel af sér. Þannig að ég held að það sé skrifað í skýin að Sjúkrahúsið á Akureyri taki saman við Háskólann á Akureyri. Við þurfum auðvitað að fjármagna það ef það á að færa sjúkrahúsið upp í það að vera háskólasjúkrahús. Því fylgir aukinn tilkostnaður, tækjabúnaðar og mannskapur. Ef það er ekki númer eitt, tvö eða þrjú á forgangslista samfélagsins að tryggja örugga og góða heilbrigðisþjónustu um allt land þá veit ég ekki hvað.

Mönnunarvandi hefur auðvitað verið viðvarandi vandamál á landsbyggðinni um allt of langa hríð og sem betur fer eru góðu fréttirnar þær að nú er búið að lækka þröskuldinn sem var á því að hleypa fólki í gegnum fyrsta árið í læknisfræðinni. Það var skelfilega erfitt og þungbært fólki sem hafði ástríðuna til að stunda læknisnám en þurfti jafnvel að fara tvisvar eða þrisvar í gegnum fyrsta árið eða þá hreinlega að flosna upp.

Hérna sér maður fyrir sér að fólk geti undirbúið sig undir framhaldsnám og orðið að landsbyggðarlækni, heimilislækni eða sérfræðingi með hvaða hætti sem verða vill. Þetta er til styrkingar á, við getum sagt, landsbyggðinni, þessum hluta hennar. Það er auðvitað ófært að menn upplifi ekki fullkomið öryggi, bjáti eitthvað á í heild sinni. Ég sé þetta sem þjóðþrifamál, ekki bara fyrir norðrið og norðaustrið eða landsbyggðina heldur bara fyrir okkur öll að byggja upp öfluga kjarna. Ég vonast til þess að fljótt og örugglega verði skipaður þessi undirbúningshópur, nefnd sem kemur með markvissar tillögur að því hvernig þetta má gera sig svo fljótt sem verða má.

Ég ætla ekki að hafa orðin fleiri. Ég held að tillagan segi allt sem segja þarf og allur rökstuðningur sem þar kemur fram í greinargerð til fyrirmyndar. Ég styð þetta mál af heilum hug og þakka þeim sem áttu frumkvæðið að því að koma því í umræðuna.