154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

uppbygging Suðurfjarðavegar.

82. mál
[15:54]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir þetta mikilvæga mál sem hér er lagt fram. Ef ég mætti ráða hefði ég viljað forgangsraða framkvæmdum eftir hættumati. Nú hefur Suðurlandið um langt árabil verið fjölfarnasti ferðamannastaður, ferðamannaleið, skulum við segja, Íslands; flestir erlendra ferðamanna hér hafa lagt leið sína um Gullfoss, Geysi, Þingvelli og stór hluti alla leið að Jökulsárlóni. Nú er ýmislegt í pípunum sem bendir til þess að Austurlandið verði senn mun fjölfarnara og meiri þungi beinist þangað, bæði af erlendum og innlendum farþegum, gullfallegt svæði. Það hefur lengi verið vitað að þetta er, eins og fram hefur komið, einn hættulegasti vegarkafli landsins, rétt liðlega 33 km. Ég spyr hv. þingmanninn hvort hann sé mér sammála um að okkur beri að vega og meta forgangsröðun út frá því hversu örugg eða óörugg viðkomandi leið er.