sveitarstjórnarlög.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir umræðuna. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, okkar reyndasta kona í sveitarstjórnarmálum, orðaði þetta bara mjög pent: Sveitarstjórnarfulltrúar eru allt of, allt of margir. Gott að hún sagði það. Varðandi athugasemdir um þriggja fulltrúa lágmarkið þá væri bara gráupplagt að hv. umhverfis- og samgöngunefnd tæki það til skoðunar, ég geri engar athugasemdir við það. Mér þykir þetta vera einfalt mál og borðleggjandi. Mér þykir að löggjafinn eigi ekki að binda hendur sveitarstjórna með þessum hætti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)