154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

starfsemi stjórnmálasamtaka.

85. mál
[16:31]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf):

Hæstv. forseti. Það er ákveðin ánægja að taka til máls undir þessum lið hér í dag vegna þess að ég gerði það líka þegar ég kom inn á þing síðast í febrúar á þessu ári, á síðasta þingi. Ánægjan felst í því að ég get þá alla vega skoðað, þegar ég les ræðuna mína þegar ég fæ hana senda frá starfsmönnum þingsins, hvort ég sé samkvæmur sjálfum mér og muni hvaða skoðun ég hafði á málinu í febrúar síðastliðnum.

Mig langar til að taka undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur sem talaði hérna áðan um mikilvægi stjórnmálaflokka í lýðræðissamfélagi. Það er ótvírætt og það er synd hvernig stjórnmálaflokkar hafa verið talaðir niður sem vettvangur málefnalegrar umræðu. Hlutverk þeirra að vera vettvangur lýðræðislegrar umræðu, einfalda stjórnmálaþátttöku og kosningar er náttúrlega gríðarlega mikilvægt. Ég er þess vegna einlægur stuðningsmaður þess að ríkið sinni því að styðja við bakið á stjórnmálaflokkum og stjórnmálastarfsemi því að hún er mjög mikilvæg fyrir lýðræðið og fyrir starfið t.d. á þessum stað hér og víðast hvar í sveitarfélögum, alla vega þeim sem eru fjölmennari. Það er hins vegar hárrétt sem hv. þingmenn sem hafa talað hér í dag, bæði flutningsmaður tillögunnar, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, hafa sagt að það sé alveg ástæða til að skoða það hvers vegna er verið að styrkja stjórnmálaflokka sem ná ekki kjöri á Alþingi. Þetta 2,5% mark held ég að sé eitthvað sem megi alveg skoða að fella burt og ég held að það væri í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það að stuðningur við stjórnmálaflokka miðaðist þá a.m.k. við það að þeir næðu fólki á þing.

Það er hins vegar þannig í samfélagi dagsins í dag að það kostar fjármuni að halda úti umræðu, það kostar fjármuni að halda fundi og halda úti virkri umræðu á samfélagsmiðlum o.s.frv. Þetta kostar allt peninga og það er mikilvægt að við sem lýðræðissamfélag tökum þátt í þeim kostnaði því að versta staðan sem við getum séð fyrir okkur í þeim efnum er að fólk missi áhuga á stjórnmálum og hætti að fylgjast með þeim og hætti að taka þátt í þeim. Ég tek undir að það er gríðarlega þroskandi fyrir einstaklinga að taka þátt í stjórnmálastarfi og kynnast því sem þar fer fram og ég segi það fyrir sjálfan mig a.m.k. að ég hefði ekki viljað missa af því þroskaferli sem ungur maður á sínum tíma að taka þátt í starfi ungliðasamtaka stjórnmálaflokks og er þar af leiðandi kannski ekki fyllilega sammála því sem fram kemur í í greinargerð þessarar tillögu. En ég held að þarna séu punktar sem eru þess virði að skoða og ég held að það væri gott að nefndin fengi þetta til skoðunar og umfjöllunar.