bætur á rekstrarumhverfi bænda .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir brýna fyrirspurn. Bændur eru auðvitað í þeirri sérstöku stöðu að þeir ráða ekki aðfangaverðinu. Þeir ráða ekki verðinu frá sér sem þýðir að allar þeirra kjarabætur eru sóttar í annað af tvennu; að auka framleiðnina eða að hækka afurðaverðið. Framleiðniaukningin verður ekki af sjálfu sér, hún verður með fjárfestingum. Margir kúabændur sem hafa fjárfest á undanförnum árum hafa gert það vegna þess að þeir hafa trú á framtíðinni. Svo gerist það að aðfangaverðið fer allt á versta veg vegna Covid og innrásar Rússa í Úkraínu eins og við þekkjum og í þokkabót hefur vaxtastigið verið með þeim hætti sem við þekkjum öll og erum að ræða hér. Þetta allt hefur sett mikla pressu á bændur. Það er mikilvægt að horfa á þessa stöðu þegar við erum að ræða mikilvægi þess að bregðast við bráðavanda. Ég hef hins vegar sagt það bæði hér í ræðustóli Alþingis og ég hef líka sagt það í fjölmiðlum að það er til staðar bráðavandi hjá þeim sem hafa fjárfest eða tekið við búum á síðustu árum en hins vegar liggur það algjörlega fyrir að við sem hér erum stödd og bændur sjálfir og samfélagið allt þurfum að hafa þrek í þá umræðu að tala um kerfin sjálf. Við höfum núna landbúnaðarstefnu sem við samþykktum hér í þinginu á vordögum sem er leiðarljósið um það hvert við skulum stefna. En við þurfum að tryggja það að stjórntækin sem við höfum hér séu réttu tækin til að ná þeim markmiðum. Það er sannarlega umhugsunarefni að við skulum vera í þeirri stöðu ítrekað, eins og hv. þingmaður bendir hér réttilega á, að við þurfum í raun og veru að grípa til þess að kalla saman hópa, sama hvort þeir heita spretthópar eða ráðuneytisstjórahópar, og við það verður ekki unað að við séum í bráðaaðgerðum hér ár eftir ár. Ég tek því undir með hv. þingmanni um að við þurfum að horfa til lengri framtíðar (Forseti hringir.) og það verður að vera hluti af umræðunni líka í kringum viðbrögðin núna á þessu ári.