bætur á rekstrarumhverfi bænda .
Virðulegur forseti. Ég hef ítrekað bent á það í umræðu um landbúnað og fæðuframleiðslu á Íslandi að landbúnaður, bæði til skemmri og lengri tíma, á ekki að vera tvíhliða samtal, þ.e. milli frumframleiðanda, bænda, annars vegar og stjórnvalda hins vegar. Landbúnaður er samfélagsleg ákvörðun um fæðuöryggi og hluti af því er líka samtalið við neytendur og við þá sem hafa ýmiss konar aðkomu að matvælaframleiðslu og matvælauppbyggingu hér í landinu. Við höfum stórkostleg tækifæri en við höfum líka miklar skyldur. Við höfum líka skyldur við það fólk sem vill taka þátt í því að halda landbúnaði hér áfram og við eigum að koma að því með þessu þríhliða samtali stjórnvalda, neytenda og bænda að tryggja það að ungt og öflugt fólk (Forseti hringir.) taki þátt í því sem eru þessi stórkostlegu tækifæri, forseti, (Forseti hringir.) sem byggja á því að við erum bæði með landgæði, vatn, orku og öflugt fólk. Við eigum alla möguleika (Forseti hringir.) fyrir íslenskan landbúnað.