154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

áhrif breytinga á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni á regluverk á Íslandi.

[15:26]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég vil hér beina fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra er varðar samskipti íslenskra stjórnvalda við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, WHO, í tengslum við uppfært regluverk sem þaðan kemur, sem snýr annars vegar að alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni og hins vegar því sem er í daglegu tali kallað, með leyfi forseta, Pandemic Treaty eða Pandemic Accord, CA+, Zero Draft, það eru mismunandi nöfn notuð um þetta. En það sem ég spyr um í dag snýr fyrst og fremst að alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni, IHR, eða International Health Regulation. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort ráðuneytið hafi unnið greiningu á því hvaða áhrif breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni, IHR, sem taka eiga gildi 1. desember 2023, fela í sér gagnvart núverandi regluverki á Íslandi. Hverjar eru helstu breytingarnar sem verða og hafa verið gerðir fyrirvarar við einhverjar þeirra breytinga sem þar eru gerðar?

Við þekkjum þetta úr umræðunni undanfarið. Það virðist sitt sýnast hverjum og það er greinilegt að þeir sem þessi mál ræða hafa tilhneigingu til að rugla saman þeim gerðum, því regluverki sem til vinnslu er á vettvangi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. En ég vil, eins og ég segi, byrja á því að spyrja hæstv. ráðherra þessara þriggja spurninga: Hefur ráðuneytið unnið greiningu á því hvaða áhrif breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni, sem taka gildi 1. desember 2023, fela í sér gagnvart núverandi regluverki á Íslandi? Hverjar eru þær helstar? Og hafa verið gerðir fyrirvarar við einhverjar þeirra breytinga sem þar eru gerðar?