154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

áhrif breytinga á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni á regluverk á Íslandi.

[15:31]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra skýr svör og mikilvægt að fá þetta fram. Hér í seinni fyrirspurn vil ég þá, svona til fyllingar þess sem hæstv. ráðherra kom inn á hér, spyrja hæstv. ráðherra: Getur heilbrigðisráðherra ábyrgst að þær breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni, International Health Regulations, sem taka eiga gildi 1. desember næstkomandi, eftir nokkra daga, feli ekki í sér skerðingu á stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga og skerði ekki fullveldisrétt íslenska ríkisins samkvæmt stjórnarskránni?