154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

endurnýjun rekstrarleyfis Arctic Sea Farm .

[15:36]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Finnst hæstv. ráðherra eðlilegt að Matvælastofnun, sem heyrir undir hennar ráðuneyti, hyggist endurnýja leyfi hjá fyrirtæki sem stofnunin hefur sjálf nýlega farið fram á að verði rannsakað opinberlega? Matvælastofnun fór fram á opinbera rannsókn á meintum brotum Arctic Sea Farm á lögum um fiskeldi eftir að tvö göt fundust á kví fyrirtækisins í Kvígindisdal í Patreksfirði í ágúst á þessu ári, en lax frá kvíunum hefur fundist í fjölmörgum laxveiðiám síðan tilkynnt var um götin. Auk Arctic Sea Farm er fyrirtækið Arnarlax með tvær umsóknir um ný framleiðsluleyfi, 10.000 tonna umsókn í Ísafjarðardjúpi og 4.500 tonna umsókn í Arnarfirði, en Matvælastofnun lagði 120 millj. kr. stjórnvaldssekt á fyrirtækið í fyrra vegna brots gegn skyldum um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski. Þykir hæstv. ráðherra það við hæfi (Forseti hringir.) að endurnýja eða veita ný leyfi til fjölda ára til fyrirtækja sem annaðhvort eru til meðferðar hjá lögreglu eða hafa nú þegar hlotið stjórnvaldssekt fyrir brot á fiskeldislögum?