endurnýjun rekstrarleyfis Arctic Sea Farm .
Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður veit þá er hvorki við hæfi né rétt að ég tjái mig um einstök mál og allra síst þau sem eru til meðferðar hjá lögreglu. Um frumvarp til nýrra heildarlaga segir m.a.:
„Frumvarpinu er […] ætlað að bregðast við þeim athugasemdum sem fram komu í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar svo skapa megi lagareldi skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Þannig verður í frumvarpinu að finna ákvæði sem taka meðal annars til hertara eftirlits, aukinna rannsókna, leyfisveitinga og gjaldtöku af sjókvíaeldi og skiptingu tekna.“
Það var löngu tímabært að taka til hendinni í þessum málaflokki og ég vænti þess að skýrari rammi og ábyrgari umgjörð um þessa starfsgrein líti dagsins ljós hér á vorþingi og vænti þess að eiga gott samstarf við Alþingi þar um.