Búseta í ósamþykktu húsnæði og brunavarnaaðgerðir.
Herra forseti. Ég er með tvær fyrirspurnir til hæstv. innviðaráðherra sem lúta að brunamálum og fyrst vildi ég aðeins koma að, eins og við sáum bara í gær, þá bárust okkur fréttir um bruna í Stangarhyl í Reykjavík þar sem einn einstaklingur er þungt haldinn á sjúkrahúsi og samtals voru þrír einstaklingar fluttir á slysadeild. Þessi bruni átti sér stað í ósamþykktu húsnæði sem veldur að sjálfsögðu áhyggjum og það bárust fréttir af því að fólk væri að stökkva út um glugga og þetta leit ekki vel út.
Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra að því hvernig við getum náð utan um þann fjölda fólks sem býr í ósamþykktu húsnæði, hvort það hafi verið kortlagt og hvað getum við gert til að koma í veg fyrir svona tilfelli? Nú er það svo að hæstv. ráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi í þinginu um tímabundnar undanþágur frá skipulagslögum til að heimila tímabundið búsetu í hvers lags húsnæði vegna skorts á húsnæði og sérstaklega er horft til mikils fjölda flóttamanna sem hafa komið til landsins vegna þessa; hvort í því frumvarpi séu þá viðeigandi ráðstafanir sem koma í veg fyrir að svona atburðir geti gerst? Það er að sjálfsögðu mikið áhyggjuefni að fjöldi fólks býr í húsnæði sem uppfyllir ekki kröfur, m.a. um brunavarnir o.s.frv. Þetta er iðnaðarhúsnæði og mikil slysagildra og við sáum það einmitt í þessum fréttum núna um helgina.