154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

búseta í ósamþykktu húsnæði og brunavarnaaðgerðir.

[15:43]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætissvar og tek undir með honum að ábyrgð húseigenda er mjög mikil í þessum efnum. Mig langaði að víkja hér aðeins að brunaöryggisgjaldinu, byggingaöryggisgjaldinu, sem nemur 0,045% af mati þess er brunatryggt er hér á landi og er innheimt af vátryggingafélögunum sem selja brunatryggingar og er því skilað í ríkissjóð. Frá 2017 — þá hét þetta brunavarnagjald og var skilað til Brunamálastofnunar og síðan Mannvirkjastofnunar, og er í reikningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar u.þ.b. 2,5 milljarðar kr. og í fjárlögum 2023 er gert ráð fyrir að gjaldið skili 650 millj. kr. í ríkissjóð.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að því hvort það komi til greina að nota hluta af þessum peningum til þess að byggja upp tækjabúnað og aðstöðu slökkviliða, sérstaklega á landsbyggðinni. Það er mikil þörf fyrir það, það eru víða gamlir slökkviliðsbílar og þarna eru peningar sem væri hugsanlega hægt að nota í þetta verkefni, sem er brýnt. Hver er skoðun hæstv. ráðherra á því að við myndum reyna að nýta þessa fjármuni til að byggja upp slökkviliðin víða um land?