búseta í ósamþykktu húsnæði og brunavarnaaðgerðir.
Herra forseti. Varðandi brunaöryggisgjaldið þá var það lagt á í lögum um mannvirki frá 2010 og hefur einmitt skilað sér í það að verða umtalsvert há fjárhæð eða 650 milljónir, eins og hv. þingmaður nefnir, á þessum tíma, oft í kringum 600 milljónir. Það var hins vegar ekki í lögum um brunavarnir. Árið 2018 þegar við leggjum niður markaðar tekjur þá er bara fjallað um það á mjög einfaldan hátt að þetta gjald skuli áfram vera til og að það renni í ríkissjóð. Hugmyndin 2010 var að það stæði fyrir umsýslu ríkisins hvað varðar þennan málaflokk. Það er alveg umdeilanlegt hvort það standi undir því í dag. Auðvitað fara þessir peningar í ríkissjóð og við erum síðan með fjármuni til að standa undir ákveðnum hlutum. Mér finnst alveg umhugsunarefni hvað ætti að gera við þessa fjármuni. Í lögum um brunavarnir, þar sem er alveg skýrt að sveitarfélögin standa fyrir rekstri slökkviliða og annars, (Forseti hringir.) var það ekki vilji löggjafans enda ekkert fjallað um að brunavarnagjald rynni til sveitarfélaga. Þannig að þetta væri stærri umræða heldur en bara sisvona. En auðvitað eigum við að skoða alla hluti.