154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

Riða.

[15:57]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu sem er bæði nauðsynleg og tímabær. Það er mikið áfall fyrir bændur að fá þau fyrirmæli að farga öllu sauðfé sínu á einu bretti og jafnvel þótt að nú sé leyfilegt að skera hluta bústofnsins niður við ákveðnar aðstæður er samt um mikið tjón að ræða. Bændur eiga rétt á bótum vegna riðuveiki og förgunar og þær á að greiða 45 dögum eftir að förgun er lokið. Því miður eru allt of mörg dæmi um að bændur þurfi að standa í stappi við ráðuneytið og það dragist að greiða bæturnar langt fram yfir tilsettan tíma með tilheyrandi viðbótartjóni fyrir bændur. Þessu verður að breyta. Bændur sinna mikilvægu samfélagslegu hlutverki, ég get nefnt fæðuöryggi, byggðaþróun, loftslagsmál og menningu í því sambandi. Bændur eiga ekki að þurfa að standa í stappi við ráðuneytið við að fá úrlausn sinna mála. Lögin eru skýr og framkvæmd þeirra þarf að vera snurðulaus. Það verður að tryggja að bændur sem hafa neyðst til þess að skera niður bústofn sinn geti hafið búskap að nýju. Til þess þarf bæði áræðni bænda en einnig fjármuni. Ríkið má ekki leggja stein í götu þeirra við enduruppbygginguna. Ég fagna því að verið sé að vinna að breytingum í þá átt sem gerist innan Evrópusambandsins líkt og bændur hafa kallað eftir. Við þurfum að lyfta landbúnaði betur upp og leggja ríka áherslu á að landbúnaður sé einstök atvinnugrein með hagsmuni sem þarf sérstaklega að gæta að og verja, hagsmuni sem markaðurinn getur ekki einn séð um. Sauðfjárrækt fylgir áhætta vegna riðu, áhætta sem við þurfum að taka með bændum.