154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

Riða.

[16:06]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Það er reiðarslag fyrir bændur þegar riðusmit greinist. Við þekkjum viðbrögð Matvælastofnunar. Það þarf að skera niður féð, það þarf að sótthreinsa allt hátt og lágt. Það þarf að skipta um allan jarðveg í námunda við húsin. En þarna er auðvitað ekki öll sagan sögð, eins og hv. þingmenn hafa komið inn á hér. Það þarf líka að rekja allt fé sem hefur farið á milli bæja innan sama sóttvarnahólfs, hvort sem það er sala á fé milli bænda í sveitinni eða hreinlega hin séríslenska lausaganga fjár. Allt nærsamfélagið er á nálum dagana og vikurnar eftir að riðusmit greinist og það er auðvitað gríðarlegt tilfinningalegt áfall að fá þennan dóm. Ég held að það fái á alla sem verða vitni að slíkum viðbrögðum bænda í fjölmiðlum, hvort sem þeir þekkja til landbúnaðar yfir höfuð eða ekki, slíkt er áfallið greinilega enda getur auðvitað lífsviðurværi margra verið í hættu, bæði hjá bændunum sjálfum og hjá þeim sem vinna við að þjónusta bændur og hjá afurðastöðvum. Síðan stöndum við frammi fyrir því að fjármagnskostnaður fyrir bændur eins og aðra hér á landi núna er þess eðlis að það er ekki sjálfgefið að þeir sem verða fyrir þessu áfalli haldi áfram búskap. Það þarf að fara í gríðarlega kostnaðarsamar framkvæmdir, oft með tilheyrandi lántökum. Það er ljóst, eins og hér hefur komið fram, að bætur sem bændur fá úr ríkissjóði eru langt frá því að brúa bilið, hafa ekki verið uppfærðar lengi auk þess sem þær geta verið torsóttar. Þessi óheillastaða bætist við aðrar erfiðar áskoranir sem bændur standa nú frammi fyrir og það þarf einfaldlega samstillt átak allra hlutaðeigandi til að búa landbúnaði viðunandi skilyrði. Það þarf fyrirbyggjandi aðgerðir við riðusmiti og aðgerðir í kjölfar slíks smits verða að falla undir það átak og það þarf að vera til lengri tíma.