154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

Riða.

[16:08]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu. Ég þakka hv. upphafsmanni hennar, hv. þm. Teiti Birni Einarssyni, og Svandísi Svavarsdóttur, hæstv. matvælaráðherra, fyrir að taka þátt í henni.

Það er auðvitað jákvæð sú breyting sem er að verða hvað varðar möguleg viðbrögð og aðgerðir með þeim rannsóknum sem nú eru að tryggja að arfgerðir geri það mögulegt að ekki þurfi að skera niður stofn í heild sinni þar sem riða kemur upp. En í þessu samhengi þá er nauðsynlegt að horfa til þeirra áhrifa sem verða á þeim búum þar sem riða kemur upp eins og staðan er núna, og mögulega í þessu millibilsástandi á meðan þessi uppræktun stofnsins á sér stað. Það blasir við að þær bætur sem bændur eru að fá fyrir það fé sem þarf að skera niður eru ekki í neinu samræmi við þann kostnað sem fellur til við að koma sér upp sambærilegum stofni aftur. Staðan núna er að bændur eru að fá í námunda við 14.000 kr. fyrir hverja kind sem er skorin, en þurfa á sama tíma að kaupa lömb sem eru ekki arfgreind fyrir 30.000 kr. Það má reikna með því að á búum sem nú mega bara kaupa ARR-lömb verði kostnaður per lamb, ja, eigum við ekki að reikna með 40.000–50.000 kr. Þannig að bara viðbótarkostnaðurinn af þeirri kvöð að bú megi einvörðungu kaupa ARR-greind lömb er samsvarandi heildarstyrknum sem fæst fyrir hina niðurskornu kind. Þetta er hlutur sem verður að skoða núna í þessu samhengi þannig að þeir bændur sem lenda á þessu millibilisstigi, ef svo má segja, sem við vonum auðvitað að verði sem fæstir, eigi einhvern möguleika á að ná viðspyrnu með sinn búrekstur eftir að niðurskurður hefur átt sér stað.