Riða.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu. Það er tvennt sem ég vil aðeins koma að. Sauðfjárbændur sem verða fyrir því áfalli að það greinist riða á bænum, eiga að vera jafn vel settir og ef riða hefði ekki komið upp á bænum. Það er því miður misbrestur á því og ég tel að reglugerðin sem stuðst er við í þessum efnum sé úrelt, við þurfum að bæta það. Ég veit til þess að það hafi gengið erfiðlega hjá bændum að fá greitt. Ég veit t.d. að bændur sem urðu fyrir því að það greindist riða hjá þeim í aprílmánuði á þessu ári hafa ekki enn þá fengið fullar bætur greiddar. Það virðist vera í þessum viðræðum við hið opinbera þegar kemur að bótum að þá sé það svolítið þannig að sjónarmið ríkisins sé alltaf ofan á og það sé ekki hlustað nægilega á sjónarmið sauðfjárbænda og það er ekki gott. Einnig er mikilvægt að það sé greitt fyrir vinnulaunin sem fylgja því að rífa niður fjárhúsin og allt það sem þessu fylgir, eða a.m.k. innan úr þeim. Auk þess er ekki sérstakur styrkur til að kaupa ný lömb, þannig að við þurfum að bæta okkur í þessum efnum og ég vona að við eigum eftir að sjá að það verði niðurstaðan. Bændur hafa náttúrlega afurðatjónsbætur á meðan á þessu stendur en niðurstaðan er sú að þeir eru eins og staðan er núna ekki jafn vel settir og við þurfum að bæta úr því.
Frú forseti. Ég vil að lokum bara koma einu að, ég vil þakka Íslenskri erfðagreiningu fyrir þeirra góða framtak við að reyna að leysa þetta mál. Ég átti gott samtal við Kára Stefánsson um þetta. Þeir hafa greint u.þ.b. 25.000 kindur í leit að þessu stökkbreytta geni sem við getum síðan vonandi ræktað út frá. Því verkefni lýkur núna um mánaðamótin þannig að vonandi komum við til með að sjá innan ekki svo langs tíma riðulaust Ísland.