154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

Riða.

[16:13]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og málshefjanda, Teiti Birni Einarssyni og hæstv. matvælaráðherra fyrir þessa umræðu. Sjúkdómar í búfé hérlendis hafa oft og tíðum valdið gríðarlegum þjáningum og tjóni, efnahagslegu sem og tilfinningalegu. Riðuveiki, sem talin er hafa borist hingað til lands með kynbótahrúti sem fluttur var hingað frá Danmörku fyrir aldamótin 1900, breiddist í fyrstu hægt út en varð síðar að faraldri sem náði um nær allt landið, eins og við þekkjum, með tilheyrandi áföllum og tjóni sem varð stórfelldara hérlendis en annars staðar.

Aðgerðir stjórnvalda gegn riðu hafa lengst af snúist um stórfelldan niðurskurð á sýktum hjörðum. Nú eru teikn um að hægt sé að rækta verndandi arfgerð og væntanlega verndandi arfgerð í sauðfé, sem vissulega lofar góðu.

Hv. þingmaður spyr m.a. um niðurstöður starfshóps sem hæstv. matvælaráðherra skipaði og skilaði af sér í byrjun þessa mánaðar. Niðurstöður starfshópsins eru greinargóðar. Mikill árangur hefur náðst hér á landi í baráttunni gegn riðu og miklar fórnir fyrri kynslóða hafa verið færðar, eins og segir í skýrslunni. Í henni er m.a. lagt upp með að hvika ekki frá niðurskurðarstefnunni, þó með breytingum þar sem verulega mikil hætta er á að úthald til margra ára bresti. Eins getur það tekið mörg ár að fá afgerandi niðurstöður rannsókna um hvort tiltekin arfgerð sé í rauninni verndandi og hljóti þannig viðurkenningu sem verndandi arfgerð.

Það eru tímamót í þessari baráttu, eins og hæstv. ráðherra kom inn á. Það er gleðilegt að heyra að það hafi verið mikil þátttaka meðal bænda í arfgerðargreiningum og að það stefni í að bændur hafi tekið um 30.000 sýni í ár.

Virðulegi forseti. Þótt brýnt sé að hreyfa sig hratt í þessum málum, og það hefur hæstv. ráðherra gert, þá borgar sig líka í ljósi sögunnar að við förum að öllu með gát. Því treysti ég hæstv. ráðherra fyrir.