154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

Riða.

[16:22]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Bændastéttin hefur lengi kallað eftir vægari úrræðum en heildarniðurskurði, en eins og við vitum hefur það verið leiðin sem hefur verið farin þegar smit koma upp. Á stórum fundi á Laugarbakka í apríl síðastliðnum var síðan kallað eftir því að ríkisstjórnin setti enn frekari áherslu á þær rannsóknir sem framkvæmdar hafa verið á riðunni. Eins og skýrt hefur komið fram hér eru miklar vonir bundnar við þessa verndandi arfgerð gegn riðu og menn tala um að við stöndum á miklum og jákvæðum tímamótum þar og það er óskandi að svo sé.

Það er engu að síður augljóslega langtímaverkefni að gera þessa nýju arfgerð að ríkjandi þætti innan íslenska fjárstofnsins. Við erum auðvitað að tala um þessar rannsóknir sem gerðar hafa verið sem gefa tilefni til bjartsýni og það er óskandi að svo sé. Við þekkjum það annars staðar að það er ekki svo að það þurfi að skera niður allan bústofn, jafnvel heilu sveitirnar þegar riða kemur upp. Eins og hér hefur komið fram er það lausagangan sem gerir aðrar lausnir ívið flóknari, það er erfitt að vita nákvæmlega hvaða fé hefur umgengist hvaða fé í afrétti eða á fjöllum og síðan þessi langi meðgöngutími frá því að smit berst í kind og þar til að ber á einkennum sem eru oft býsna lítil eða erfitt að þekkja.

Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og mér þykir gott að í umræðunni hér, bæði hjá málshefjanda og hjá ráðherra sem og öðrum þingmönnum sem hafa talað, hefur komið mjög skýrt fram að það er vilji til að taka utan um bændur mjög heildstætt þegar kemur að riðu og baráttunni við að útrýma riðunni og svo mögulegum bótum þegar slík smit koma upp. Það liggur líka fyrir að umræðan núna um þennan fjanda kemur beint ofan í umræðu um gríðarlega erfiða stöðu bænda af alls konar ástæðum, m.a. vegna mikils fjármögnunarkostnaðar og það er núna í aðdraganda endurskoðunar á búvörusamningum. (Forseti hringir.) Þannig að þó svo að við séum að tala hér um þörf á afmarkaðri lausn á þessum afmarkaða vanda, sem okkur tekst vonandi að útrýma, þá er þetta enn eitt púslið, enn einn bitinn í það púsl sem við þurfum að fara að klára (Forseti hringir.) og hvernig við búum hér bændum og landbúnaði almennt viðunandi skilyrði.