154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

Riða.

[16:25]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil í seinni ræðu minni halda áfram að lýsa yfir áhyggjum mínum af þróun mála, sérstaklega fyrir þau bú sem verða fyrir því að upp komi riða í þessu millibilsástandi, ef við köllum það svo. Ég nefndi hér áðan að lambgimbur væri væntanlega verðlögð á 40.000–50.000 kr. og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson telur að það verði nær 50.000 þegar þar að kemur. Á sama tíma eru borguð tæp 14.000 fyrir niðurskorna kind. Þetta er staða sem setur auðvitað þá bændur sem fyrir verða í næstum því óleysanlega stöðu.

Framboð á lömbum er auðvitað áhyggjuefni þegar þar að kemur. En varðandi þá bændur sem lenda í þessu núna þá er auðvitað skylda að taka eingöngu inn ARR-lömb, það er engin önnur arfgerð sem telst tæk í því samhengi, þannig að fjárhagslegu áhrifin af því að fá 13.000–14.000 fyrir niðurskorna kind og þurfa að kaupa hvert lamb mögulega á 40.000–50.000 eru illleysanleg fyrir þau sem í lenda.

Það eru fleiri þættir sem hafa áhrif. Það er einangrun í allt að sjö ár, eins og nefnt hefur verið. Svo er annað sem verður að hafa í huga í þessu samhengi sem gerir það hugsanlega mögulegt að leysa þetta millibilsástand. Í dag skiptist þetta í meginatriðum í förgunarbætur og afurðatjónsbætur og förgunarbæturnar verða hverfandi á þeim búum þar sem ekki er farið í heildarniðurskurð, þannig að maður skyldi ætla að það gæfi eitthvert svigrúm til að styðja betur við þá bændur sem lenda í þessu nú um stundir að upp komi riða, því að það verða takmarkaðar förgunarbætur. En það má ekki heldur leggja þá kvöð á bændur að það sé þrifið og þrifið með óskilgreindum kostnaði og kröfum án þess að neitt fáist fyrir þá vinnu.

Ég fagna því bara að ráðherra lýsi því hér yfir að þessi endurskoðun sé fram undan en minni jafnframt á að forveri hæstv. ráðherra lýsti sömu skoðun á liðnu kjörtímabili, en í millitíðinni hefur lítið gerst.